Óvenju lágum þrýstingi (allt niður í 934 hPa) er spáð yfir landinu í dag. Einnig er allvíða von á mikilli ölduhæð nærri ströndinni. Líkur eru á hárri sjávarstöðu og jafnvel sjávarflóðum við suður-, austur- og norðurströndina.
Síðdegis gengur miðja lægðarinnar inn á land og þá dregur úr vindi og úrkomu sunnan- og austanlands. Hins vegar gengur þá í norðan stórhríð á norðvestanverðu landinu.
Í kvöld og í nótt heldur lægðin áfram ferð sinni til norðausturs og færist þá norðanáttin með hríðinni til austurs eftir norðanverðu landinu og einnig yfir á Austurland. Á Norður- og Austurlandi snjóar væntanlega áfram í fyrramálið, en síðan dregur smám saman úr norðanáttinni og ofankomu. Síðdegis á morgun ætti lægðin að vera úr sögunni og veður orðið skaplegt, en nokkuð kalt.
Hægt er að fylgjast með lægðinni ganga yfir á korti hér fyrir neðan.