Fundi hjá ríkissáttasemjara vegna kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna hefur verið frestað til klukkan tíu á morgun.
Langt hefur verið á milli deiluaðila en engu að síður sjá menn sér ástæðu til að hittast aftur á morgun.
Deiluaðilar munu ekki tjá sig að sinni við fjölmiðlamenn.
Flugmenn hafa rætt um að þeir vilji sækja sér kjarabætur frá þeim tíma sem þeir gáfu eftir kjör á Covid-tímum en Icelandair hefur sagt frá því að flugmenn séu á góðum kjörum í alþjóðlegu samhengi. Á sama tíma hefur rekstur flugfélagsins verið undir væntingum.