Nýkjörnir borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins komu saman til fundar með oddvita sínum í Klúbbhúsi Snarfara við Elliðavog síðdegis í dag, þar sem þeir ræddu möguleika við myndun nýs meirihluta í Reykjavíkurborg.
„Ég get ekki sagt að ég sé komin með óskameirihluta en ég mun viðra ákveðin sjónarmið við hópinn og bera undir þau ákveðin sjónarmið sem gætu ráðið för,“ segir Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins.
Mikilvægast sé að mynda meirihluta þar sem sé vinnufriður og þar sem flokkurinn geti komið verkefnalista sínum til framkvæmdar.
Heimildir fréttastofu herma að Framsókn verði með í nýjum meirihluta hvort sem það verði með Viðreisn eða Miðflokki. Þrír fyrrum borgarfulltrúar Sjálfstæðisflokks eru á lista Miðflokks.