Tónlistarmyndbandið er framleitt af Atlavík, sem stendur einnig að baki kvikmyndinni. Leikstjórn er í höndum þeirra Allans Sigurðssonar og Hannesar Þórs Arasonar, en þeir hafa áður leikstýrt tónlistarmyndböndum og sjónvarpsþáttum Iceguys ásamt Hannesi Þór Halldórssyni.
„Við höfum lagt mikinn metnað í bæði tónlistarmyndbandið og kvikmyndina og vonum að það skili sér til áhorfenda. Þetta er skemmtilegt fyrsta skref í að kynna það sem fram undan er og við hlökkum til að deila myndinni með áhorfendum í haust,“ segir í tilkynningu frá leikstjórum Atlavíkur.
Árni Páll Árnason, betur þekktur sem Herra Hnetusmjör og einn af meðlimum Iceguys, segir að síðastliðið ár hafi farið í mikla vinnu við lokaverkefni sveitarinnar.
„Við höfum verið á fullu allt árið að vinna að síðustu flugeldasýningu Iceguys og við vonum að þetta lag falli vel í kramið... 7-9-13.“