Frítt í strætó fyrir grunnskólabörn Reykjavíkur

Frítt í strætó fyrir grunnskólabörn Reykjavíkur

Strætó verður gjaldfrjáls fyrir grunnskólabörn í Reykjavík frá og með næsta mánuði. Á fundi borgarstjórnar þann 3. febrúar síðastliðinn var samþykkt tillaga þess efnis. Á fundi borgarráðs í dag lagði Heiða Björg Hilmisdóttir borgarstjóri fram tillögur varðandi útfærsluna.

Tillögurnar voru fjórar: Í fyrsta lagi að boðið verði upp á tímabilskort í Klapp-appi Strætó í maí og júní 2026 fyrir reykvísk börn á grunnskólaaldri (í 1.-10. bekk) sem brúarlausn á meðan varanleg útfærsla er unnin. Í öðru lagi að börnum sem gangi í grunnskóla á Kjalarnesi verði tryggt sambærilegt aðgengi að lausninni í gegnum niðurgreiðslu á ferðakostnaði þá mánuði sem brúarlausnin nær yfir.

Loftmynd af miðbæ Reykjavíkur, Hallgrímskirkja fyrir miðju myndar. Mynd tekin í Mars 2026
RÚV / Ragnar Visage

Í þriðja lagi var lagt til að starfshópur hefji viðræður við Almenningssamgöngur höfuðborgarsvæðisins ohf., sem tekur við rekstri Strætó bs. 1. júlí 2026. Þá var í fjórða lagi lagt til að sett yrði af stað umfangsmat á NFC-uppfærslu Klapp-appsins, sem starfshópur um málið leggur til að verði varanleg lausn.

Heildarkostnaður við tillögurnar fjórar er 47 milljónir króna, fyrir tímabilið maí og júní. Þær verða fjármagnaðar með viðauka.

Frítt er þegar í strætó fyrir börn yngri en 11 ára. Breytingin nær því til barna frá 12 ára aldri og fram að útskrift úr grunnskóla.

Á fundi borgarstjórnar 3. febrúar var lagt upp með að útfærsla af niðurfellingu strætógjalds reykvískra ungmenna yrði komin til framkvæmdar eigi síðar en 1. maí, eða á morgun. Grunnskólum verður þó lokað á morgun vegna verkalýðsdagsins og geta börn því ekki nálgast tímabilskortin fyrr en eftir helgi.

#frítt #fyrir #grunnskólabörn #reykjavíkur #strætó


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-04-30-fritt-i-straeto-fyrir-grunnskolaborn-reykjavikur-474052

Fatal error: Uncaught Error: Call to undefined function getRecentArticles() in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php:260 Stack trace: #0 /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php(36): showArticlePage() #1 {main} thrown in /home/u581947260/domains/skrollid.com/public_html/index.php on line 260