Frakkland er orðið tíunda Evrópuríkið til þess að samþykkja lög um dánaraðstoð. Frumvarp um að fólk geti sótt um dánaraðstoð í ákveðnum tilvikum var samþykkt nú á sjötta tímanum.
Samkvæmt frumvarpinu getur fullorðið fólk með ólæknandi sjúkdóm fengið aðstoð við að deyja – í ákveðnum tilvikum. Leiðin hefur ekki beint verið greið. Upphafsmaður frumvarpsins, sem nú er hættur á þingi, lýsir henni sem maraþonhlaupi með hindrunum.
Frumvarpið kom fyrst fram fyrir 14 árum og hefur tekið ýmsum breytingum. Það var loks samþykkt í neðri deildinni en hafnað í öldungadeildinni. Raunar hefur neðri deildin samþykkt þrjár útgáfur af frumvarpinu og samkvæmt stjórnarskrá hefur neðri deildin lokaorðið ef ekki tekst að leysa ágreining.
Málið fer næst fyrir stjórnlagaráð, sem þarf að staðfesta að ákvæði frumvarpsins samræmist stjórnarskrá Frakklands.
Frakkland verður tíunda Evrópuríkið sem leyfir dánaraðstoð á einhvern hátt. Þá hefur neðri málstofa breska þingsins samþykkt frumvarp um dánaraðstoð sem dagaði uppi í lávarðadeildinni vegna málþófs. Það fer þó aftur á dagskrá í haust.
Ríki Evrópu sem hafa samþykkt lög um dánaraðstoð eru: Austurríki, Belgía, Holland, Ítalía, Lúxemborg, Portúgal, Spánn, Sviss og Þýskaland.
Í Portúgal hafa lögin ekki enn komið til framkvæmda og löggjöfin er mismunandi í hverju ríki fyrir sig.
Alls staðar umdeild
Dánaraðstoð er alls staðar umdeild þegar hún kemur til umræðu. Andstæðingar hennar í Frakklandi óttast að fólk sem er gamalt eða veikt verði beitt þrýstingi um að sækja slíka aðstoð.
„Settir hafa verið varnaglar inn í frumvarpið. Það myndi eingöngu gilda um fólk sem glímir við alvarlega, lífshættulega og ólæknandi sjúkdóma á síðustu stigum, fólk sem glímir við sársauka sem líknarmeðferð linar ekki eða sem er óbærilegur,“ útskýrir John Leiscester fréttmaður AP.
Þá þarf viðkomandi að vera franskur ríkisborgari eða búsettur í Frakklandi og að sýna fram á að þetta sé hans eigin vilji.
„Fólk með alvarlegar geðraskanir eða taugahrörnunarsjúkdóma, til dæmis Alzheimer, kæmi ekki til greina,“ segir Leiscester.