Flak fraktflugvélar K2 Airways, sem hrapaði suðvestur af Karachi í Pakistan í nótt, er fundið. Samband vélarinnar við flugumferðarstjórn rofnaði eftir að flugmenn tilkynntu bilun í flugleiðsögutækjum.
Fimm voru í vélinni og þeirra er enn saknað. Í áhöfninni voru tveir flugmenn, tveir flugvirkjar og einn starfsmaður.
Eftir að samband við flugumferðarstjórn rofnaði hóf sjóher og sjóbjörgunarstofnun Pakistans umfangsmikla leit. Flakið fannst tólf klukkustundum síðar í Arabíuhafi, 53 sjómílur sunnan við hafnarbæinn Omara í Pakistan.
Yfirvöld í Pakistan segja að áhafnarinnar sé enn leitað. Vélin var á leið frá borginni Karachi í suðurhluta Pakistans til Sharjah í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.