Forstjóri Landspítalans að mikið hafi rofað til á Landspítalanum undanfarið vegna minnkandi álags. 244 ný hjúkrunarrými fyrir aldraða hafa verið opnuð síðastliðna 12 mánuði.
64 hjúkrunarrými voru opnuð í Boðaþingi í Kópavogi, 80 hjúkrunarrými á Nesvöllum í Reykjanesbæ og 100 rými í Urðarhvarfi sem notuð eru sem skammtímahjúkrunarrými.
Nýlega voru svo Vífilsstaðir opnaðir aftur eftir umtalsverðar endurbætur á húsnæðinu. Þar eru 48 rými. Þá er fyrirhugað að opna 154 ný hjúkrunarrými árið 2027 og 251 árið 2028.
Þetta hefur leitt til þess að minna álag er á Landspítalanum en hefur verið undanfarin ár.
Í tilkynningu frá heilbrigðisráðuneytinu segir að staðan á Landspítalanum varðandi sjúklinga með færni- og heilsumat hafi ekki verið betri það sem af er þessari öld.
Hinn svokallaði fráflæðisvandi hefur verið áberandi á þessu ári en það er þegar fólk sem hefur lokið meðferð á bráðamóttöku kemst ekki áfram á legudeildir því þar eru aldraðir sjúklingar sem bíða eftir plássi á hjúkrunarheimilum.
Haft er eftir Runólfi Pálssyni í tilkynningunni að mikið hafi rofað til á síðustu vikum.
„Það er fyrst og fremst gleðilegt fyrir þá einstaklinga sem nú hafa fengið varanlega og fullnægjandi búsetu sem mætir þörfum þeirra og styður við lífsgæði og sjálfstæði,“ segir hann en varar þó við því að staðan geti breyst til hins verra á skömmum tíma.
„Sá mikli fjöldi einstaklinga sem hefur þurft að vistast langdvölum á Landspítala vegna skorts á viðeigandi úrræðum utan spítalans hefur haft veruleg áhrif á getu okkar til að þróa og efla þjónustu stofnunarinnar,“ segir hann.
Á næstu vikum verður svo hjúkrunarheimilið Hlévangur í Reykjanesbæ opnað að nýju eftir endurbætur á húsnæði og aðstöðu. Mörg fleiri uppbyggingarverkefni eru í undirbúningi eða hafin, líkt og fram kemur í framkvæmdaáætlun um uppbyggingu hjúkrunarheimila til ársins 2030.
Þá verður ný bráðamatsdeild við bráðamóttöku Landspítala í Fossvogi opnuð í haust sem mun létta álagi af bráðamóttökunni, bæta enn flæði sjúklinga og þjónustu við sjúklinga.