Frá og með morgundeginum mega allir einstaklingar gefa blóð óháð kyni eða kynhneigð. Þá tekur gildi ný reglugerð Ölmu D. Möller heilbrigðisráðherra
„Við aukum öryggi blóðþega og stækkum hóp blóðgjafa. Verklagsreglur verða skýrar um að óheimilt sé að vísa blóðgjöfum frá á grundvelli kynhneigðar en skýr skilyrði sett um ábyrga kynhegðun allra blóðgjafa, óháð kynhneigð og kyni,“ segir Alma í tilkynningu.
Í fyrstu grein reglugerðarinnar er sérstaklega tekið fram að markmið hennar sé að blóðgjöfum sé ekki mismunað á grundvelli ómálefnalegra sjónarmiða líkt og kyns þeirra, kynhneigðar, uppruna eða stöðu að öðru leyti.
Þó er skilgreint viðmið um áhættusamt kynlíf sem leitt getur til tímabundinnar frávísunar blóðgjafa vegna aukinna líka á smiti alvarlegra smitsjúkdóma í gegnum blóð. Viðmiðið er óháð kyni eða kynhneigð.
Hingað til hafa samkynhneigðir karlar á Íslandi ekki mátt gefa blóð þar sem þeir voru flokkaðir í áhættuhóp með tilliti til blóðgjafar. Talin var meiri áhætta á að samkynhneigðir karlar væru smitaðir af HIV-veirunni.
Reglubreytingin er í samræmi við álit ráðgjafanefndar um fagleg málefni blóðbankaþjónustu og var markmiðið að tryggja sem best öryggi blóðþega. Það verður gert með markvissri áhættugreiningu, einstaklingsbundnu áhættumati allra blóðgjafa og NAT-skimun (kjarnsýrugreiningu) alls gjafablóðs. NAT-skimun var innleidd hjá Blóðbankanum fyrir rúmu ári og hefur gefið góða raun. Skimað er fyrir lifrarbólgu B og C og HIV-veirunni.