Ferðaþjónustan mótmælir harðlega áformum stjórnvalda um innviðagjald á Gullna hringinn. Forstjóri Icelandair segir að það verði skaðlegt fyrir þjóðarbúið ef kostnaðarhækkanir dragi úr eftirspurn Íslands. Forsætisráðherra segir þetta hins vegar gríðarlega spennandi tækifæri fyrir áfangastaðinn Ísland.
Áætlaðar tekjur 6 til 7 milljarðar á ári
Drög að frumvarpi atvinnuvegaráðherra um náttúru- og innviðagjald fyrir aðgang að þremur fjölsóttustu ferðamannastöðum í eigu ríkisins á Gullna hringnum hafa verið í samráðsgátt og er samráði lokið. Áætlað er að tekjur ríkissjóðs vegna gjaldsins verði sex til sjö milljarðar á ári. Forsætisráðherra var spurð út í málið á Alþingi í gær og sagði þá að henni finnist þessi vegferð sem stjórnvöld séu nú að hefja geta verið gríðarlega spennandi tækifæri fyrir áfangastaðinn Ísland.
Flestar umsagnir leggjast gegn frumvarpinu
35 umsagnir hafa borist um frumvarpið og langflestar leggjast gegn því. Flestir segja þó mikilvægt að tryggja uppbyggingu og viðhald á vinsælum ferðamannastöðum og taka ekki endilega fyrir einhvers konar gjaldtöku, en skoða þurfi heildarmyndina og meta samanlögð áhrif allra gjalda á ferðaþjónustu. Þetta gjald komi ofan á hækkanir annarra gjalda á ferðaþjónustuna síðustu misseri.
Þannig segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, í umsögn Icelandair sem hann undirritar, að stjórnvöld verði að gæta ítrasta hófs við innleiðingu nýrra gjalda á ferðaþjónustu og segir að það væri skaðlegt fyrir þjóðarbúið ef kostnaðarhækkanir leiði til þess að það dragi úr eftirspurn eftir ferðum til Íslands. Viðskiptaráð hvetur til að frumvarpsdrög verði endurskoðuð og að lagt sé heildstætt mat á áhrifin. Samtök ferðaþjónustunnar leggjast alfarið gegn frumvarpinu og mótmæla harðlega áformunum.
Friðheimar segja áhrifin ekki hafa verið metin
Sveitarstjórn Bláskógabyggðar mótmælir og forsvarsfólk Friðheima leggst gegn gjaldtökunni og telur áhrifin á fyrirtæki og samfélög á svæðinu ekki hafa verið metin með fullnægjandi hætti. Samtök sunnlenskra sveitarfélaga taka í sama streng og segja sumir um grófa mismunun að ræða.