Stefan Thumann, forstjóri drónaframleiðslufyrirtækisins Donaustahl, er í felum og hefur þurft að skipta um dvalarstað á nokkurra vikna fresti og fer hvergi án lífvarða af ótta við tilræði af hálfu rússneskra stjórnvalda.
Hann segir í samtali við AFP að þýsk yfirvöld hafi í desember varað hann við mögulegri ógn af hálfu Rússa og að annaðhvort ljúki sögunni með falli Rússlandsstjórnar eða dauða hans sjálfs. Thumann telur fleiri en hann í hættu, í raun öll lönd Evrópusambandsins og hvert einasta vopnafyrirtæki.
Thumann er einarður stuðningsmaður Úkraínu í innrásarstríðinu og segir lífið hafa umturnast eftir að hann neyddist til fara huldu höfði. Hann sé meira og minna einangraður frá umheiminum en gangi þó vel að stjórna fyrirtækinu hvar sem hann er staddur.
Hins vegar séu samskiptin við fjölskylduna handahófskennd og aðeins gegnum fjarfundabúnað. Tveir menn hafa verið handteknir vegna ógnarinnar í garð Thumann en hann segir hættuna alls ekki yfirstaðna.
Innanríkisráðuneyti Bæjaralands, þar sem Donaustahl hefur aðsetur, kveðst aðspurt vita af málinu. Það vilji þó ekki tíunda það frekar og segir málið í höndum ríkissaksóknara. Leyniþjónustur víða um Evrópu hafa sakað Rússa um að fremja skemmdarverk gegn vopnaframleiðendum í álfunni. Þeir neita allri sök.
Thumann segir að þótt Donaustahl sé lítið fyrirtæki framleiði það fjöldann allan af ódýrum drónum og að sú staðreynd hafi ergt rússnesk stjórnvöld. Tveir búlgarskir ríkisborgarar voru handteknir í liðinni viku grunaðir um að hafa kastað eldsprengjum nærri höfuðstöðvum vopnatæknifyrirtækis og drónaframleiðanda í München.
Þótt ekkert erlent ríki hafi verið ásakað um þá árás var hún gerð skömmu eftir að þýsk yfirvöld sökuðu Rússa um að standa að baki drónaárás á flugvelli við borgina Leipzig. Þá sagði kanslarinn Friedrich Merz að Þýskaland væri fórnarlamb fjölþáttahernaðar.
Rússar eru sakaðir um að finna útsendara til að vinna fyrir sig, jafnvel gegnum samfélagsmiðla og fyrir tiltölulega lága greiðslu. Þeim sem slíkt athæfi stunduðu yrði refsað að sögn kanslarans.
Rússar segjast hvergi hafa komið nærri atburðunum í Leipzig. Í kjölfarið lokuðu Þjóðverjar rússneskri ræðismannsskrifstofu og menningarmiðstöð. Thumann segir að þýsk stjórnvöld verði að átta sig á að raunveruleg átök séu þegar hafin við Rússland og að setja þurfi Rússum ákveðin mörk.
„Að mínu mati erum við í raunverulegu stríði,“ segir Thumann. Rússneski utanríkisráðherrann Sergei Lavrov komst svipað að orði fyrr í september þegar hann sagði viðbrögð þýskra yfirvalda við því sem gerðist í Leipzig líkjast upphafi stríðsátaka.