54 prósent landsmanna eru ánægð með störf Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Það er 9 prósentustigum hærra en í síðustu könnun, þegar aðeins 45 prósent kváðust ánægð með störf hennar.
Maskína kannar ánægju með störf forseta Íslands á hverjum ársfjórðungi. Í fyrra mældist ánægja með störf Höllu samantekið 52 prósent, á fyrsta ári hennar í embætti, 2024, voru 48 prósent ánægð.
Samkvæmt nýjustu könnun Maskínu um ánægju með störf forseta Íslands eru tæp 24 prósent mjög ánægð og tæp 10 prósent ánægð. 5,5 prósent eru mjög óánægð með störf Höllu, tæp 8 prósent frekar óánægð, en þriðjungur svarenda er hvorki ánægður né óánægður.
Þegar litið er til ákveðinna hópa innan samfélagsins má sjá að konur eru almennt ánægðari með störf forseta en karlar. 64 prósent kvenna eru ánægð og tæp 8 prósent óánægð, en meðal karla eru aðeins tæp 44 prósent ánægð en rúm átján prósent óánægð.
Kjósendur Viðreisnar eru ánægðastir með störf Höllu, eða 67,5 prósent. Næst á eftir koma kjósendur Pírata og Flokks fólksins með rúm 63 prósent. Óánægðastir eru kjósendur Miðflokksins og Vinstri grænna.