Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur náðu ekki saman um meirihluta í höfuðborginni, þrátt fyrir vonir margra þar um. Formenn flokkanna, þau Guðrún Hafsteinsdóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson gera upp sveitarstjórnarkosningarnar og fara yfir yfirvofandi þjóðaratkvæðagreiðslu þann 29. ágúst í Spursmálaþætti dagsins.
Þátturinn var sýndur hér á mbl.is fyrr í dag en upptaka af honum er öllum aðgengileg í spilaranum hér að ofan, á Spotify og YouTube.
Staða Icelandair mikið áhyggjuefni
Þá mætir til leiks Marinó Örn Tryggvason, fyrrverandi forstjóri Kviku banka en hann ritaði grein í Morgunblaðið í morgun sem nefnist Maður mjólkar ekki dauða kú. Hann hefur verulegar áhyggjur af stöðu Icelandair sem hann segir mikilvægasta fyrirtæki landsins. Hann kom að fjárhagslegri endurskipulagningu félagsins í Covid-faraldrinum og þekkir því vel til á vettvangi. Hvað er til ráða? Er hætt við því að Íslendingar missi úr höndunum þessa lífæð milli landsins og meginlandanna í austri og vestri?
Stafræn velferð
Í lok þáttarins ræðir Stefán Einar við þau Önnu Laufeyju Stefánsdóttur hjá Stafrænni velferð og Svein Tryggvason, framkvæmdastjóra Tæknivara. Þau hafa áhyggjur af stöðu samfélagsmiðla og hvernig þeir virka á unga fólkið í landinu. Hvar liggur vandinn? Eru þessir sömu miðlar nú þegar búnir að gleypa foreldra barnanna?
Lifandi, fróðleg og kraftmikil þjóðmálaumræða í Spursmálum alla föstudaga klukkan 14.00 hér á mbl.is.
