„Þetta var eiginlega svolítið óvart. Ég ætlaði mér upphaflega í Tækniskólann en fór á opið hús í FB og leist eiginlega mun betur á kennarana sem ég hitti og aðstöðuna í skólanum, það var svolítið ástæðan.“
Þessi ummæli eru höfð eftir Benedikt Fazakerley Richardssyni, dúx Fjölbrautaskólans í Breiðholti, en á miðvikudaginn útskrifaði þessi elsti fjölbrautaskóli landsins 168 nemendur með stúdentspróf við hátíðlega athöfn í Silfurbergi í Hörpu og varð Benedikt þar dúx með einkunnina 9,83 sem er hæsta í lokaeinkunn í rúmlega 50 ára sögu skólans sem stofnaður var 4. október 1975.
Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skólameistari stýrði athöfninni og var kvödd með virktum í lok hennar en Guðrún Hrefna lætur af störfum eftir skólaárið sem nú var að ljúka eftir sautján ár sem skólmeistari.
Kennarar áhugasamir – oft kostur
„Námið gekk vel, kennararnir eru mjög góðir, ég fékk svo sem ekki mikla reynslu af félagslífinu en innan tölvubrautarinnar var mikil samheldni, viðburðir haldnir og þess háttar,“ segir dúxinn sem útskrifaðist þar með augljóslega af tölvubraut.
Aðspurður kveðst Benedikt hafa ákveðið að fara á tölvubraut skömmu áður en hann hóf nám sitt við skólann. „Ég þekkti nokkra sem stefndu þangað og ákvað í raun að fylgja þeim,“ segir nýstúdentinn og ber skólanum vel söguna.
„Kennslan er góð og kennararnir hafa áhuga á efninu sem er mjög mikilvægt. Kennslunni er sinnt mjög vel,“ segir Benedikt sem, aftur aðspurður, kveðst hafa reynt að vinna sem mest í skólanum hvað námið snerti. „Þar hafði ég aðgang að kennurum og öðrum nemendum sem ég gat beðið um aðstoð ef á þurfti að halda. Þar með gat ég komist hjá því að vinna mikla heimavinnu og náði að halda góðu skipulagi,“ segir hann af aðferðafræði sinni.
Gleði og þakklæti efst í huga
Í FB fer fram símat á framvindu nemenda og eiginleg lokapróf því ekki haldin nema í einstaka námsáfanga. „Þar með er alltaf verið að koma inn verkefnum sem þarf að klára og álagið eykst þar með á önninni en munur á kennslutímabilinu sjálfu og annarlokum er þar með ekki mikill,“ segir Benedikt frá.
Að hausti stefnir hann á nám í tölvunarstærðfræði við Háskólann í Reykjavík og reiknar með að skila umsókn sinni til skólans á næstu dögum. Þá sé framhaldsnám erlendis að lokinni BS-gráðu frá HR freistandi og segir Benedikt hugann einkum leita til Danmerkur eða Þýskalands þótt hann vilji ekki útiloka neitt.
Hvaða tilfinningar bærast helst í hjarta þér nú þegar þú kveður skólann eftir þriggja ára dvöl?
Dúxinn ungi veltir spurningunni fyrir sér um stund.
„Aðallega bara gleði og þakklæti. Ég var mjög kvíðinn til að byrja með en þetta var allt saman dásamleg upplifun, fullt af góðum vinum og frábærum kennurum. Ég lærði mikið á þessum tíma,“ segir Benedikt Fazakerley Richardsson að lokum, stúdent frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti með hæstu einkunn í hálfrar aldar sögu skólans.

