Karl Bretakonungur vill lítið með Andrew bróður sinn hafa. Hann fór nýverið út á land á sveitasetur sitt í Sandringham þar sem Andrew er í eins konar útlegð. Var hann sagður ætla að hunsa bróður sinn í fríinu.
Karl var í fríi í nokkra daga og þurfti ekki að sinna opinberum erindagjörðum á meðan. Hann ætlaði að njóta þess að hafa tíma fyrir sig í örfáa daga. Fram kemur á vef Hello að hann ætlaði ekki að heimsækja bróður sinn þrátt fyrir að vera í næsta koti við hann.
Karl svipti Andrew konunglegum titlum eftir fjölda óviðeigandi mála sem upp komu. Andrew varð meðal annars að yfirgefa ristastórt sveitasetur sitt, Royal Lodge í Windsor. Í stað þess fékk hann hús í Sandrigham, á landareign konungs í Norfolk, á Englandi. Það þýðir að þegar Karl dvelur í Sandringham getur hann heimsótt Andrew. Kærleikurinn á milli bræðranna er hins vegar ekki mikill.
