Hitinn fór í 25 stig á Austurlandi í dag, sem er það mesta sem mælst hefur á landinu í sumar. Þéttsetið er á tjaldsvæðum í landshlutanum.
Fólk lét ekki hitamistur sem lagðist yfir seinni partinn stoppa sig í að njóta veðurblíðunnar. Í Atlavík svömluðu krakkar í Lagarfljóti en sum höfðu verið á ferðinni í marga daga.
Mikael Valur Frímannsson og Sigurjón Óli Njarðvík reyndu að fanga fisk í gildru. Þeir voru ekki í vafa um hvað þeir ætluðu að gera við fiskinn þegar þeir næðu honum. „Fyrst ætlum við að drepa hann og svo setja hann á grillið,“ sagði Sigurjón Óli. „Og bara, ég veit ekki, búa til sushi eða eitthvað. Það er besti maturinn,“ bætti Mikael Valur við.