Honum er gefið að sök að hafa myrt hina fjórtán ára gömlu Celeste Rivas Hernandez, og svo sundurbútað lík hennar og látið það rotna í skotti bíls síns, meðan hennar var leitað. Lögreglan hóf leit að Hernandez árið 2024, en lík hennar fannst í september síðastliðnum.
Hann er jafnframt talinn hafa misnotað hana kynferðislega um nokkuð skeið.
Nú er Burke í haldi og hefur verið ákærður fyrir þennan verknað. Málið er komið á borð dómstóla vestanhafs og til skoðunar hvort réttað verði yfir tónlistarmanninum.
Hann neitar sök í málinu.
Áðurnefnt lag birtist á Apple Music um helgina og ber titilinn „I did it“, eða „Ég gerði það“. Svo virðist sem aðgangur Burke hafi verið hakkaður, og laginu, sem sé ekki raunverulega frá honum komið, komið fyrir.
Í viðlagi þessa falsaða lags er nafn stúlkunnar ítrekað sungið, henni lýst sem stúlkunni sem „bar nafn mitt húðflúrað á bringu sína“, og að angan hennar hafi fests í fötum hans líkt og sígarettur. Ljóðmælandinn segist jafnframt sakna hennar, og að hún muni endanlega elska hann þegar hann sjálfur muni deyja.
Söngröddin þótti lík þeirri sem Burke hefur, en lagið hefur nú verið tekið út.