Grunn lægð fer norðaustur yfir landið í dag og fylgja henni víða skúrir, en suðaustanlands verður um tíma samfelld rigning. Vindur nær sér lítið á strik og það snýst í rólega vestanátt síðdegis. Hiti verður á bilinu 7 til 13 stig, hlýjast fyrir austan.
Á morgun má gera ráð fyrir smáskúrum víða um land en þó síst á Austurlandi. Hiti breytist lítið og svipað útlit er á miðvikudag.
Að sögn veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands snýst væntanlega í norðaustlæga átt á fimmtudag og þá kólnar talsvert á norðanverður landinu með slyddu eða jafnvel snjókomu.
„Nokkur óvissa er enn um hversu mikillar úrkomu er að vænta. Á sama tíma er spáð rigningu sunnantil og mun mildara veðri. Þeim sem eiga eitthvað undir veðri norðan heiða er því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.
Veðurhorfur á landinu næstu daga:
Á miðvikudag:
Suðvestan 5-13 og dálítil væta um vestanvert landið en skýjað með köflum á Austurlandi. Hiti 7 til 12 stig.
Á fimmtudag:
Gengur í austan og norðaustan 8-15. Rigning og hiti 5 til 10 stig á sunnanverðu landinu. Rigning, slydda eða snjókoma og kólnar fyrir norðan, hiti um eða rétt yfir frostmarki síðdegis og vægt frost til fjalla.
Á föstudag:
Norðaustan og austan 5-13. Rigning sunnanlands en slydda eða snjókoma með köflum norðaustantil. Hiti 0 til 8 stig, kaldast norðaustanlands.
Á laugardag:
Austanátt 5-15 m/s og rigning um allt land. Heldur hlýnandi.
Á sunnudag:
Austlæg átt, 3-10 m/s og væta með köflum. Hiti 3 til 10 stig, hlýjast sunnanlands.