Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra segir að það sé ánægjulegt að framkvæmdastjórn ESB sé farin að beita DSA-reglugerðinni af fullum þunga.
„Við þekkjum það bara hér á landi að fólk er að kaupa óafvitandi jafnvel eitraðar vörur fyrir börnin sín því það fær ekki þessar nauðsynlegu upplýsingar. Þetta er gríðarlega stórt skref,“ segir hún.
Fyrr í dag var greint frá því að kínverska netverslunin Temu þurfi að greiða 30 milljarða króna sekt til Evrópusambandsins. Þetta er vegna þess að verslunin passaði ekki nægilega vel upp á það að ólöglegar og hættulegar vörur, þar á meðal fyrir börn, væru ekki seldar í aðdilarríkjum sambandsins.
Sektin er sú hæsta sem lögð hefur verið á netfyrirtæki á grundvelli DSA-reglugerðarinnar um fyrirtæki af þessu tagi
Atvinnuvegaráðherra segir reglugerðina mikilvæga en hún geri viðskiptaumhverfi á netinu bæði öruggara og gegnsærra. Ráðuneyti hennar vinnur að innleiðingu hennar um þessar mundir. Ferlið er þó flókið vegna þess að Ísland er ekki hluti af ESB.
„Við munum leggja mikla áherslu á þetta,“ segir Hanna Katrín sem vonast til að leggja fram frumvarp á Alþingi næsta vor. Verði það samþykkt getur Ísland beitt netsölufyrirtæki viðurlögum.
„Það verður að tryggja öryggi fólks, almennings og heimila landsins gagnvart viðskiptaháttum þessara risafyrirtækja sem víla ekki fyrir sér að fela upplýsingar eða fara á svig við eðlilega viðskiptahætti,“ segir hún.