Vegna mikils álags hafa HEF veitur beðið íbúa og gesti á Hallormsstað að fara sparlega með vatnið næstu daga. Á síðu HEF veitna segir að mikið álag sé á vatnsveitunni og brunndælur farnar að erfiða við að standa undir eftirspurninni.
Veðurblíða hefur gælt við Austurland síðustu daga og enn sér ekki fyrir endann á henni. Fjöldi Íslendinga hefur elt sólina og dvelur nú á Hallormsstað.
Eins og lítið þorp
Bergrún Arna Þorsteinsdóttir aðstoðarskógarvörður segir stöðuna á vatni góða enn sem komið er.
„Í rauninni er verið bara að pæla í því að það verði nóg vatn handa öllum, að við spörum vatn svo við verðum ekki vatnslaus. Það er betra að byrgja brunninn áður en maður dettur ofan í hann. Staðan er í rauninni ágæt en þegar er svona mikið af fólki í skóginum og mikil vatnsnotkun að vera ekki að nota vatnið til óþarfa,“ segir hún.
Um þúsund manns dvelja á tjaldsvæðunum í Atlavík og Höfðavík að sögn Bergrúnar. „Þetta er orðið eins og lítið þorp núna, stærra en mörg sveitaþorpin.“
Hún segir mannmergð á við þessa algenga á Hallormsstað þegar veðrið sé svona gott í júlí. Helmingi færri dvelji á tjaldsvæðunum í góðu veðri í júní vegna þess að þá séu leikskólarnir ekki komnir í sumarfrí. „Þetta er mikið af barnafólki.“