Tónleikarnir fara fram í garðinum hjá kránni Dillon við Laugarveg, og munu nú hefjast klukkan fjögur síðdegis á morgun.
„Vegna kvörtunar vegna ónæðis frá hóteli á Laugavegi teljum við okkur ekki annað fært en að færa dagskrána á Rokk Í Reykjavik fram um eina klukkustund á morgun og hina dagana - við byrjum þessvegna dagskrána á morgun klukkan 16 og hættum uppúr klukkan átta - svo túristarnir geti farið að hátta. Hér kemur því ný uppfærð dagskrá .. En sjáumst samt hress, bara aðeins fyrr. Þessi skilaboð eru í boði KEA Hótela,“ segir í tilkynningu frá Dillon.