Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands og samninganefndar félagsins, segir ummæli Boga Nils Bogasonar, forstjóra Icelandair, vegna atkvæðagreiðslu félagsmanna um verkfall vera varhugaverð og óábyrg. Hann vísar sérstaklega til orða Boga sem sagði í fréttum á laugardag að það væri alvarlegt að fagstéttir gætu lokað landinu með verkfallsaðgerðum.
Atkvæðagreiðslu félagsmanna um verkfall hjá Icelandair lýkur í hádeginu.
Bogi sagði í fréttum að það kæmi upp grafalvarleg staða ef fólk færi í verkföll og nær lokaði landinu. Hann sagði flugvirkja jafnframt hafa fengið sömu hækkanir og aðrir síðustu ár.
Óskar svarar Boga í færslu á vef Flugvirkjafélagsins og lýsir vonbrigðum sínum með framgöngu og yfirlýsingar hans meðan flugvirkjar kjósa um verkfall. Hann hafnar fullyrðingum Boga um launaþróun.
Óskar segir að forsvarsmönnum Icelandair sé frjálst að tala um mögulegar afleiðingar verkfalls en þegar talað sé um að það geti næstum lokað landinu með alvarlegum afleiðingum sé ástæða til að staldra við.
„Flugvirkjar eru ekki að kjósa um það hvort Ísland verði opið eða lokað. Flugvirkjar loka ekki landinu. Verkfall myndi hafa veruleg áhrif á starfsemi Icelandair, en Icelandair er ekki eina flugfélagið sem flýgur til og frá Íslandi. Áhrifin geta verið mikil án þess að ein starfsstétt hafi þar með í höndum sér að „loka landinu“,“ segir í grein Óskars sem lýkur á hvatningu til að leyfa flugvirkjum að kjósa í friði.