Flugvirkjafélag Íslands og Icelandair hafa komist að samkomulagi um að flugvirkjar aflýsi verkfalli félagsins sem hófst á miðnætti.
„Aðilar eru sammála um að nýta næstu 4 vikur til markvissra viðræðna samkvæmt verkstýrðri viðræðuáætlun ríkissáttasemjara með það að markmiði að ljúka samningagerð um nýjan kjarasamning,“ segir í sameiginlegri yfirlýsingu frá félögunum.
Þar segir jafnframt að allt flug Icelandair frá Keflavík og Reykjavík síðdegis sé á áætlun. Samkvæmt brottfarartöflum á vef Isavia fer fyrsta flug Icelandair frá Keflavík til London Heathrow klukkan 16:10. Þá er flug Icelandair frá Reykjavík til Egilsstaða klukkan 15.
Fréttin var uppfærð eftir að flugi Icelandair frá Reykjavík til Akureyrar klukkan 13:45 var aflýst.