Rússneski herinn hefur staðfest að Oreshnik-flugskeyti, sem getur borið kjarnorkuvopn, hafi verið skotið á Úkraínu.
Oreshnik-eldflaugarnar ná allt að tíföldum hljóðhraða eða rúmlega 12 þúsund kílómetra hraða á klukkustund.
Viðbragð við hryðjuverkaárásum
„Til að bregðast við hryðjuverkaárásum Úkraínu á borgaralega innviði á rússnesku yfirráðasvæði gerði her rússneska sambandsríkisins umfangsmikla árás með Oreshnik-flugskeytum, Iskander-eldflaugum, Kinzhal ofurhljóðfráum eldflaugum og Tsirkon-stýriflaugum auk dróna,“ sagði í yfirlýsingu varnarmálaráðuneytisins.