Í tilkynningu Lögreglunnar á Suðurlandi á Facebook segir að um klukkan 11 í morgun hafi lögreglu borist tilkynning um flugslys sunnan Mýrdalsjökuls. Einum manni á svifvæng hafi hlekkst þar á og hann orðið viðskila við samferðamenn. Björgunarsveitir og þyrla Landhelgisgæslunnar hafi verið kölluð út til leitar og björgunar.
Í uppfærðri tilkynningu segir að flugmaðurinn hafi verið hífður um borð í þyrlu Landhelgisgæslu Íslands, sem fljúgi með hann til skoðunar og aðhlynningar á bráðamóttöku Landspítala.
Tildrög slyssins séu rannsökuð af rannsóknardeild lögreglunnar á Suðurlandi.
Fréttin hefur verið uppfærð.