Flugi Icelandair til Zürich var aflýst í morgun en vélin átti að fara í loftið klukkan 7.20 samkvæmt vef Isavia.
Ásdís Ýr Pétursdóttir, forstöðumaður samskipta hjá Icelandair, staðfestir í samtali við mbl.is að aflýsa hafi þurft ferðinni vegna mönnunarvanda.
Sex flugferðum Icelandair var aflýst í gær þar sem ekki tókst að manna áhöfn vélanna.
Icelandair og Félag íslenskra atvinnuflugmanna eiga í kjaradeilu og hefur lítið þokast í viðræðum síðastliðna daga.
Seint í gærkvöld var ekki búið að boða annan fund í kjaradeilunni en samtöl áttu sér stað símleiðis um helgina að sögn Ástráðs Haraldssonar ríkissáttasemjara.