Milljónir kvenna með brjóstakrabbamein gætu sleppt lyfjameðferð í framtíðinni en vísindamenn hafa þróað DNA-próf sem getur greint á milli sjúklinga sem líklegir eru til að hafa gagn af meðferðinni og þeirra sem ólíklega munu hafa gagn af.
Þetta leiðir ný alþjóðleg rannsókn í ljós en BBC greinir frá.
Samkvæmt rannsókninni gætu tveir af hverjum þremur sloppið við lyfjameðferð við brjóstakrabbameini og fengið í staðinn hormónameðferð.
Lyfjameðferð við krabbameini getur valdið ýmsum aukaverkunum, m.a. þreytu, ógleði, hárlosi og veikt ónæmiskerfið.
Rannsóknin var unnin í University College London (UCL) og náði til yfir fjögur þúsund nýgreindra sjúklinga í Bretlandi, Noregi, Svíþjóð, Ástralíu, Nýja-Sjálandi og Taílandi. Allir höfðu náð 40 ára aldri.
Mældu virkni 50 gena
Vísindamenn notuðu genapróf sem kallast Prosigna til að mæla virkni 50 gena sem stuðla að vexti brjóstakrabbameins og reiknuðu í kjölfarið út áhættuna á að sjúkdómurinn tæki sig aftur upp.
Þeir sem fengu lága einkunn, þar sem ólíklegt var að sjúkdómurinn myndi taka sig aftur upp, fengu ekki lyfjameðferð. Fimm ára lifun í þeirra hópi var 93,7% samanborið við 94,4% lifun meðal sjúklinga sem fengu lyfjameðferð sem hluta af meðferð sinni.
Aðalmeðferð við brjóstakrabbameini er venjulega skurðaðgerð til að fjarlægja æxli. Oft er mælt með lyfjameðferð í kjölfarið til að draga úr hættu á að krabbameinið taki sig upp aftur.
Niðurstaðan léttir
Sérfræðingar hafa áhyggjur af því að lyfjameðferð hafi lítinn ávinning fyrir þá sem eru með algengustu tegundir brjóstakrabbameins.
UCL segir að yfir fimm þúsund sjúklingar breska heilbrigðiskerfisins gætu sloppið við lyfjameðferð í framtíðinni.
Karen Bonham, frá Cardiff, tók þátt í rannsókninni. Hún segir niðurstöðuna mikinn létti en þökk sé Prosigna-prófinu hefur hún þegið geisla- og hormónameðferð í átta ár.