Hækkandi eldsneytisverð vegna stríðsins í Mið-Austurlöndum hefur orðið þess valdandi að sífellt fleiri eru nú samferða í bílum enda leitar fólk eftir ódýrari ferðamátum.
Talsmenn BlaBlaCar, sem er stærsti vettvangur heims þegar kemur að samnýtingu bíla, sögðu að hækkandi orkukostnaður hefði laðað 600.000 fleiri ökumenn að appinu á þessu ári. Það er 20 prósentum meira en upphaflega var áætlað þar sem ferðalangar leita leiða til að vega upp á móti hækkandi eldsneytiskostnaði.
Á Indlandi, stærsta markaði fyrirtækisins með yfir 20 milljónir notenda árið 2025, hefur farþegum fjölgað um 40 prósent frá því að loftárásir Bandaríkjanna og Ísraels á Íran hófust 28. febrúar.
Þróunin áberandi í löndum sem hækkanir hafa verið verulegar
Á síðasta ári náði alþjóðlegi samnýtingarrisinn metárangri á Indlandi, fjölmennasta landi heims, og fór fram úr Brasilíu með 19 milljónir notenda og Frakklandi með sjö milljónir, að sögn Benjamin Retourne, vörustjóra BlaBlaCar.
Þessi þróun hefur verið áberandi í löndum þar sem eldsneytisverðshækkanir vegna stríðsins hafa verið skyndilegar og verulegar, ásamt takmörkuðum stuðningi stjórnvalda, eins og í Frakklandi.
Vettvangurinn virkar með því að tengja saman ökumenn og farþega sem eru tilbúnir að ferðast saman milli borga til að deila kostnaði, en appið tekur 20 prósenta þóknun í flestum af þeim 21 löndum sem það starfar í.
