Fjúkandi þök á Siglufirði og Bolungarvík á varaafli

Fjúkandi þök á Siglufirði og Bolungarvík á varaafli

Fjúkandi þök á Siglufirði og Bolungarvík á varaafli

Heldur hefur dregið úr vindi og úrkomu á suðvesturhorninu en þegar lægðarmiðjan gengur á land á suðausturströndinni á fimmta tímanum snýst veður í norðanhríð víða norðvestantil sem færist hægt og rólega yfir Norðurland og Norðausturland í nótt og í fyrramálið, sagði Hera Guðlaugsdóttir veðurfræðingur í hádegisfréttum.

Hún segir að vindur verði á bilinu 18 til 25 metrar á sekúndu norðvestan til.

Síðustu viðvaranir falla úr gildi í hádeginu á morgun. Þá ætti veður að vera orðið skaplegt en áfram verður snjór á vegum, einkum norðanlands, segir Hera. „Þá ætti þessi kuldatíð að vera liðin hjá í bili, að minnsta kosti.

Sjávarstaðan er nokkuð hagstæð en menn eru í viðbragðsstöðu í höfnum, festa allt lauslegt og taka upp báta, sagði Gréta Sigríður Einarsdóttir fréttamaður. Hún er í Bolungarvík. Þar er gul viðvörun í gildi en appelsínugul tekur gildi klukkan þrjú.

Vegir eru á óvissustigi og vindur hefur farið yfir 30 metra á sekúndu í hviðum.

„Það er ekkert ferðaveður. Þetta er tími til að halda sig inni og horfa á öldurótið út um gluggann.“

Mjólkárlína leysti út í hádeginu, milli Geiradals og Mjólkár. Líklegast er að ísing hafi valdið þessu. Varaafl í Bolungarvík var ræst um leið og því hefur þetta ekki valdið rafmagnsleysi.

Landsnet hafði búið sig undir að óveðrið gæti haft áhrif á flutningskerfið. Fylgst er vel með línum á Vestfjörðum og Snæfellsnesi þar sem hætt er við ísingu á línum.

Þak fór af í heilu lagi af einbýlishúsi á Siglufirði í morgun. Björgunarsveitir eru að störfum og ljóst er að mikið tjón hefur orðið.

Auk björgunarsveitarinnar Stráka á Siglufirði hafa björgunarsveitir frá Ólafsfirði, Dalvík og björgunarsveitirnar Tindar og Súlur verið kallaðar til aðstoðar á Siglufirði.

Magnús Magnússon formaður Stráka segir að þök, þakkantar, lausamunir og bílskúrshurðir hafi fokið. Það er mikil rigning og rok í bænum.

Lögregla biðlaði til Siglfirðinga fyrr í dag að halda sig heima og Magnús segir fólk fara að fyrirmælum.

Mjólkurlína 1 hefur leyst út og Bolungarvík er komin á varaafl, að því er segir á vef Landsnets.

Gréta Sigríður Einarsdóttir fréttamaður og Jóhannes Jónsson tökumaður eru í Bolungarvík þar sem veður fer versnandi og nær hápunkti síðar í dag þegar appelsínugul viðvörun skellur á klukkan 17.

Þar verður ekker ferðaveður, en það eru líka skilyrði fyrir ísingu á raflínum. Orkubú Vestfjarða er í startholunum ef rafmagn fer af.

Leið 57 milli Reykajvíkur og Akureyrar verður ekki ekin í dag að því er fram kemur á vef Strætó.

Geislar sólarinnar brutu sér leið leið í gegnum óveðursskýin, bæði í höfuðborginni og í Skagafirði. Fréttamenn tóku þessar myndir, annars vegar af regnboga í Efstaleiti og hins vegar í Skagafirði.

Engin viðvörun er nú á höfuðborgarsvæðinu. Appelsínugul viðvörun tók gildi á Breiðafirði klukkan 12 og gular viðvaranir eru í gildi á Faxaflóa, Ströndum og Norðurlandi vestra, Miðhálendinu, Austfjörðum og Suðausturlandi.

Í Skagafirði eru svakalegir vindstrengir, sól og úrkoma og það glitti meira að segja í regnboga þegar Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður og Kristófer Óli Birkisson tökumaður voru þar fyrir skemmstu.

Björgunarsveitin Tindar á Ólafsfirði hefur verið kölluð til aðstoðar við Stráka á Siglufirði. Þar hefur fólk verið beðið að halda sig heima. Veður fer þar versnandi, þök hafa fokið og tjón hefur orðið á eignum.

Vegum á sunnanverðu Snæfellsnesi hefur verið lokað að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is.

Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir fréttamaður og Bragi Valgeirsson tökumaður eru á bakka Klébergslaugar á Kjalarnesi. Þar mældust hviður allt að 36 m/s í morgun.

Ákveðið var að loka sundlauginni en hún var opnuð aftur klukkan ellefu.

Lögreglan á Norðurlandi eystra biðlar til Siglfirðinga að halda sig heima. Þar geysi miklir vindar, þök hafi fokið og tjón orðið á eignum.

Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður ræddi við Baldur Jón Baldursson, snjómokstursmann hjá Nesbræðrum, á Öxnadalsheiði.

Hann hefur verið á heiðinni síðan klukkan átta í morgun og segir veðrið að stigmagnast. Heiðin er á óvissustigi.

Hefur þú rekist á trampólín þar sem það á ekki að vera eða fljúgandi furðuhluti í óveðrinu? Sendu okkur mynd!

Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði hefur verið kölluð út í óveðursaðstoð. Útkallið barst nú rétt eftir klukkan ellefu, segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.

Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út skömmu fyrir klukkan níu í morgun til að aðstoða við gróðurhús í garði við heimahús. Því verkefni er lokið.

Greint var frá því í morgun að björgunarsveitin í Vestmannaeyjum hefði aðstoðað við að festa þakkant.

Ásta Hlín Magnúsdóttir fréttamaður og Hjalti Stefánsson tökumaður eru á Stöðvarfirði. Þar er sæmilegt veður en Austfirðingar hafa einna helst áhyggjur af hækkandi sjávarstöðu þegar líður á daginn.

Kort Vegagerðarinnar á umferðin.is er ansi skrautlegt þennan morguninn. Í viðvörun frá Vegagerðinni segir:

Í dag miðvikudag 14. október er verður appelsínugul viðvörun á Suðurlandi til kl.10:00 vegna storms og vindhviða sem geta farið yfir 40 m/s. Á Snæfellsnesi og Breiðafirði tekur appelsínugul viðvörun gildi kl. 11:00, á Vestfjörðum kl. 17:00 og á Ströndum og Norðurlandi vestra kl. 21:00 vegna hvassviðris og síðar norðanstórhríðar. Búast má við mikilli snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og lokunum vega. Gular viðvaranir eru einnig í gildi víða um land. Vegfarendur eru hvattir til að fresta ferðum ef kostur er, aka með gát og fylgjast með veður- og færðarspám.

Öxnadalsheiði er á óvissustigi en hefur enn ekki verið lokað. Vegagerðin vinnur að snjómokstri. Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður og Kristófer Óli Birkisson tökumaður eru á heiðinni og segja að þar skiptist á snjóþekja, hálka og krapi.

Strætó hefur fellt niður ferðir á landsbyggðinni vegna veðurs. Þær leiðir sem hafa ekki ekið í morgun eru leið leið 51 milli Reykjavíkur og Selfoss, leið 50 milli Reykjavíkur og Akraness/Borgarness, og leiðir 58/82 frá Borgarnesi út á Snæfellsnes.

Icelandair vonast til að geta flogið til Akureyrar, Egilsstaða og Hafnar síðdegis en forsvarsfólk er ekki bjartsýnt á að flogið verði til Egilsstaða í dag. Þetta segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Ekkert innanlandsflug hefur verið í morgun.

Guðni segir að millilandaflug Icelandair frá Keflavíkurflugvelli hafi gengið vel það sem af er morgni. Einu flugi Icelandair hefur verið aflýst þaðan vegna slæms veðurs í Færeyjum.

Mismunandi viðmið hjá flugfélögum

Nokkrum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli var frestað í morgun. Það voru flugferðir á vegum Neos, Atlantic Airways, EasyJet, Finnair og Air Canada.

Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að mismunandi flugfélög hafi mismunandi viðmið vegna veðurs. Flugvöllurinn starfi eðlilega og búið sé að opna eina landgönguranann sem var lokað í morgun.

Klébergslaug á Kjalarnesi er lokuð vegna veðurs. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að líkamsrækt sé opin og að það verði látið vita þegar sundlaugin opnar á ný.

Niðurföll eru stífluð víða í höfuðborginni og stórir pollar hafa myndast á götum. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók þessar myndir af starfsmanni Reykjavíkurborgar við Skeiðarvog.

Hviða mældist 57 m/s á Hvammi undir Eyjafjöllum í morgun. Í færslu Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings á Facebook segir að það sé langhæsta hviðumælingin hingað til.

Einar segir að 12 sinnum hafi hviða mælst hærri á Hvammi, en alltaf á tímabilinu desember til mars. Þetta sé því hæsta hviða sem mælst hefur þar í október eða nóvember.

Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mælist hæsti meðalvindurinn, 42 m/s.

Viðmælendur fréttastofu við suðurströndina segja að þar sé veður að ganga niður.

Mjög hvasst var í morgun og þar rigndi mikið. Einn vegfarandi sagði í viðtali við fréttastofu að rigningin hefði bulið af svo miklum krafti á framrúðu bíls hans á leið í vinnu að honum hefði hálfpartinn þótt sem veðrið hefði eitthvað á móti honum persónulega.

Það voru læti í veðrinu upp úr klukkan fimm og sex í morgun en það hefur dottið niður síðasta klukkutímann. Einn viðmælandi sagði að það væri komin blíða hjá sér eftir læti morgunsins.

Vegagerðin er búin að opna þjóðveginn milli Víkur og Markarfljóts, sem var lokaður í morgun.

Flugfélögin Icelandair og Norlandair hafa aflýst samtals fjórum flugferðum í dag og Icelandair er búið að seinka einni til viðbótar.

Flugferðum Icelandair milli Reykjavíkur og Akureyrar, Hornafjarðar, Egilsstaða og Ísafjarðar hefur verið aflýst. Flugi milli Reykjavíkur og Egilsstaða hefur verið frestað.

Norlandair hefur aflýst flugi milli Reykjavíkur og Bíldudals.

„Það var að losna þakkantur af húsi ofarlega í bænum. Minn mannskapur er búinn að fara og festa þennan þakkant niður og er kominn aftur í hús,“ segir Aðalsteinn Baldursson, í svæðisstjórn í Vestmannaeyjum.

Hann segir að menn hafi verið fljótir að bregðast við enda vanir útköllum þegar hvessir í Eyjum. Þeir héldu svo til vinnu að útkallinu loknu en eru viðbúnir því að bregðast við ef frekari þörf verður á aðstoð í dag.

Enn bætist í vind. Mesti vindur sem mælst hefur á láglendi var á Stórhöfða, 42,0 metrar á sekúndu. Þar var enn hvassara í hviðum. Þessu næst koma Surtsey með 30,4 metra á sekúndu og Reykjanessviti með 28,5 metra á sekúndu.

Á hálendi var mesti vindurinn 31,7 metrar á sekúndu á Jökulheimum.

Mikið hefur rignt í Vík í Mýrdal. Þar er úrkoman orðin 38,1 millímetri frá miðnætti.

Við minnum á veðurvef RÚV.

Óveðrið hefur sín áhrif á innanlandsflug.

Fyrsta flugi dagsins milli Reykjavíkur og Akureyrar var aflýst. Flugferðum milli Reykjavíkur og Egilsstaða og Reykjavíkur og Hornafjarðar hefur verið seinkað um eina og eina og hálfa klukkustund.

Flugi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar hefur verið seinkað þar til eftir hádegi.

Skólayfirvöld í Vestmannaeyjum hafa ákveðið að fresta skólahaldi til klukkan níu í dag vegna veðurs.

Skólarnir verða opnir svo nemendur komist inn en kennsla hefst ekki fyrr en klukkan níu, eins og staðan er nú. Fólk er þó hvatt til að fylgjast með uppfærðum fréttum á heimasíðu bæjarins.

Mjög hvasst er í Vestmannaeyjum. Vindurinn mældist 37,2 metrar á sekúndu á Stórhöfða klukkan sex.

Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út skömmu fyrir klukkan átta í morgun. Þá barst beiðni um aðstoð vegna þaks sem var að losna af einbýlishúsi í ofanverðum bænum.

Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna skriðuhættu á Austfjörðum.

Talsverð úrkoma var í byrjun vikunnar og er jarðvegur í hlíðum því blautur eða vatnsmettaður. Hann er því viðkvæmur fyrir frekari hættu og útlit er fyrir talsverða eða mikla rigningu.

Í dag skapast kjöraðstæður fyrir fljúgandi trampólín og ruslafötur sem færast úr stað.

Veðurstofan hvetur fólk til að koma lausamunum í skjól svo þeir fjúki ekki.

Fyrirsjáanlegt er að óveðrið hamli samgöngum í dag. Þegar er búið að loka þjóðveginum syðst á landinu en auk þess er fjöldi vega á óvissustigi. Viðbúið er að þeir geti lokast með skömmum fyrirvara.

Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði, í Mývatnsöræfum, Möðrudalsöræfum, á Biskupshálsi og Vopnafjarðarheiði.

Á Vesturlandi eru Vatnaleið, Svínadalur, Brattabrekka og Holtavörðuheiði á óvissustigi frá klukkan 10.

Flestir vegir á Vestfjörðum verða á óvissustigi í dag. Fyrst eru það Þröskuldar, Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp frá klukkan 10. Síðan Klettsháls klukkan 11 og Kleifaheiði, Hálfdán, Miklidalur, Dynjandisheiði og Gemlufjallsheiði frá klukkan 12.

Öxnadalsheiði er á óvissustigi frá klukkan 7 og Siglufjarðarvegur frá klukkan 9.

Farið er að hvessa hressilega syðst á landinu þar sem skil frá mjög djúpri lægð suður af landinu eru farin að ganga inn á landið. Þar er austan stormur eða rok með talsverðri eða mikilli úrkomu.

Í veðurpistli vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að klukkan sex hafi verið hvassast á Stórhöfða. Þar var vindurinn 37,2 metrar á sekúndu. Næsthvassast var á Vatnsgarðshólum þar sem vindurinn fór í 25,2 metra á sekúndu.

Lægðin gæti endurskrifað Íslandssöguna.

„Lægðin er óvenju djúp og eru nýjustu spár að reikna hana alveg niður í 930 mb þegar hún verður dýpst um hádegisleytið, en þá verður hún skammt suður af Vestmannaeyjum. Lægsti þrýstingur sem mælst hefur í október er 938,4 mb árið 1963.“

„Eins og við höfum verið að spá í gær og í fyrradag þá er útlit fyrir vonskuveður á öllu landinu í dag. Það er mjög djúp lægð núna á hraðri leið til okkar úr suðri og búið að hvessa talsvert sunnanlands í nótt og það á eftir að versna mjög hratt í morgunsárið með talsverðri rigningu,“ segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur.

„Skilin verða komin inn á landið fyrir hádegi og úrkoma í öllum landshlutum og hvassviðri og stormur, jafnvel rok.“

Lægðamiðjan kemur inn á land síðdegis og þá dregur talsvert úr veðri sunnan og austan til á landinu, segir Hrafn. Þá minnkar veðurhæðin og dregur úr úrkomu.

„Síðan kemur mjög stíf norðanátt sem er vestan megin við lægðarmiðju. Hún kemur inn seinnipartinn með norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Það er margt að gerast í dag.“

Víða viðrar illa til ferðalaga. Fyrst um sinn er hvassast syðst á landinu, svo sem undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum þar sem verða hættulegar hviður.

Þetta breytist þegar líður á daginn. Þá taka gildi appelsínugular viðvaranir á norðvestanverðu landinu og veður versnar á Norður- og Austurlandi. Það getur gert hríð á fjallvegum vestanlands og fyrir norðan. „Það er varasamt ferðaveður víða á landinu.“

Veðrið verður sérstaklega slæmt norðvestan til þegar hvessir og snjóar talsvert. „Þar getur færðin versnað mjög mikið og hratt.“

Hrafn ráðleggur fólki að huga að lausum munum og taka þá inn.

Á höfuðborgarsvæðinu er útlit fyrir hvassar hviður fram að hádegi en lagast upp úr því.

Búið er að loka hringveginum á stórum kafla syðst á landinu vegna óveðursins sem gengur yfir landið. Vegurinn verður lokaður til klukkan níu.

Mannaðir lokunarpóstar verða á svæðinu.

Sjómenn drifu sig í land í nótt áður en óveðrið skall á suður af landinu. Laust fyrir klukkan þrjú voru öll skip farin af viðvörunarsvæðinu út af Suðurlandi.

Valtýr Bjarnason, stýrimaður á Vestmannaey, ræddi við fréttastofu rétt fyrir klukkan fjögur. Skipið átti að koma inn til löndunar á morgun en þau áform breyttust vegna veðursins.

„Versta veðrið hérna í Eyjum verður þarna klukkan fimm til níu þannig að við ætluðum að vera komnir inn áður en það skylli á,“ segir Valtýr. „Það voru komnir svona fjórtán fimmtán metrar þegar ég var að sigla inn, þannig að það er aðeins byrjað.“

Góðan dag og velkomin á fréttavakt RÚV þar sem við fylgjumst með óveðrinu sem gengur yfir landið í dag og þeim áhrifum sem það kann að hafa á samfélagið.

Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út um allt land. Þær fyrstu hafa þegar tekið gildi. Sú alvarlegasta er appelsínugul viðvörun á Suðurlandi vegna austan- og norðaustanstorms. Honum fylgir talsverð rigning á láglendi og ekkert ferðaveður er meðan veðrið er hvað verst. Einnig hafa tekið gildi gular viðvaranir vegna storms og hvassviðris á höfuðborgarsvæðinu, Suðausturlandi og Austfjörðum.

Þegar líður á daginn tekur við hver viðvörunin á fætur annarri. Verst verður veðrið svo við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra þegar líður á daginn, kvöldið og nóttina.

Misjafnt er eftir landshlutum hvenær óveðrið hefst og hvenær það gengur niður. Sums staðar verður það versta afstaðið í dag en annars staðar ekki fyrr en í nótt eða á morgun. Síðasta gula viðvörunin fellur úr gildi á hádegi á morgun, á Austurlandi.

#bolungarvík #fjúkandi #siglufirði #varaafli #þök


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-10-14-fjukandi-thok-a-siglufirdi-og-bolungarvik-a-varaafli-489775

📰 Aðrar fréttir

Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Vill sleppistæði við ungbarnaleikskóla og segir vandann heima­til­búinn - Vísir
Magnea samdi tillöguna sem fulltrúar meirihlutans, Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknar, lögðu fram og var samþykkt í ráðinu í dag. „Tillaga...
Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Með gaddakúlu og sprautunálakylfu - Vísir
Ákæran er birt í Lögbirtingablaðinu þar sem ekki hefur tekist að birta honum ákærurnar.  Í fyrstu ákærunni er honum gefið að sök að hafa veist að mann...
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
„Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ - Vísir
Um er að ræða undarlegt mál sem hefur farið eins og eldur í sinu samfélagsmiðla síðustu daga. Málið má rekja aftur til síðustu helgar þegar Clarkson h...
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
📅 14.10.2026 👁️ 0
Sjórinn flæddi yfir bryggjuna á Skagaströnd
„Það var flóð í hádeginu. Þá stóð pusið alveg yfir bryggjuna,“ segir Baldur Magnússon, hafnarvörður á Skagaströnd.Þar hafa hviður farið upp í allt að ...
„Það væri mjög miður“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
„Það væri mjög miður“ - Vísir
Þetta segir Finnbjörn Hermannsson í samtali við fréttastofu í morgun, rétt áður en þing Alþýðusambandsins hófst.  Þingið hófst klukkan tíu í morgun á ...
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Litli spítalinn án samnings og ráð­herra sér ekkert svig­rúm - Vísir
Litli spítalinn er einkarekin heilbrigðisþjónusta sem er í undirbúningi við Háaleitisbraut 68. Guðrún Ása Björnsdóttir sérfræðilæknir stendur að verke...
Brösugleg byrjun hjá nýjum tals­manni Trumps - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Brösugleg byrjun hjá nýjum tals­manni Trumps - Vísir
Zacharia er 42 ára gömul. Hún starfaði í skamman tíma fyrr á árinu sem talsmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna og hefur verið gestur hjá bæði Fox...
Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví
📅 14.10.2026 👁️ 0
Telur enga hættu stafa af strandaðri sjókví
Tóma sjókví rak á land í Patreksfirði um miðjan september. Gerður Björk Sveinsdóttir, bæjarstjóri í Vesturbyggð, segir að þau viti af kvínni og eigend...
Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum
📅 14.10.2026 👁️ 1
Kalla eftir skýrslu um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum
Tíu þingmenn úr Sjálfstæðis- og Framsóknarflokki kalla eftir skýrslu frá Ölmu Möller heilbrigðisráðherra um gæði þjónustu á hjúkrunarheimilum. Markmið...
Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Kallar 25 ára þak á verð­tryggð lán sýndar­mennsku - Vísir
Þær tókust á um áformin í Bítinu á Bylgjunni í morgun. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis og Hildur á einnig sæti í nefndinn...
Fluttu til Íslands og náðu að spara 840 þúsund krónur á einum mánuði – „Með öllu inniföldu“
📅 14.10.2026 👁️ 1
Fluttu til Íslands og náðu að spara 840 þúsund krónur á einum mánuði – „Með öllu inniföldu“
Ung spænsk kona flutti til Íslands ásamt kærasta sínum til að vinna í veitingageiranum. Hún segist ná að spara mikinn pening í hverjum mánuði.Myndband...
Sally Rooney says her books will be removed from sale in UK over Palestine Action support
📅 14.10.2026 👁️ 1
Sally Rooney says her books will be removed from sale in UK over Palestine Action support
The Irish writer is best known for novels such as Normal People, Intermezzo and Conversations With Friends.
Le Pen boðar minni framlög Frakka til ESB
📅 14.10.2026 👁️ 1
Le Pen boðar minni framlög Frakka til ESB
Marine Le Pen, leiðtogi frönsku Þjóðfylkingarinnar, og mögulega næsti forseti Frakklands, segir að Frakkar ættu að skera niður framlög sín til Evrópus...
Security guards catch suspect after jewellery raid at Gran Canaria shopping centre
📅 14.10.2026 👁️ 1
Security guards catch suspect after jewellery raid at Gran Canaria shopping centre
Security guards caught and held a suspected robber after masked raiders used fire extinguishers and smashed display cabinets during a jewellery shop r...
Toilet paper and secret recorders: What we know about the arrest of the Saudi OpenAI engineer
📅 14.10.2026 👁️ 0
Toilet paper and secret recorders: What we know about the arrest of the Saudi OpenAI engineer
Abdulrahman Alfozan had worked for the AI giant for more than a year before he was arrested by the FBI.
Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands
📅 14.10.2026 👁️ 1
Ríkið tók yfir vinsælustu fréttastöð Tyrklands
Lögreglan í Tyrklandi gerði rassíu í húsakynnum Halk TV, vinsælustu fréttastöð landsins, í morgun. Útsendingum var hætt og fólk hliðhollt stjórnvöldum...
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi
📅 14.10.2026 👁️ 1
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi
Segja að Bandaríkin hjálpi núna Rússlandi Úkra­ínskir emb­ætt­is­menn segja að Banda­ríkin hafi hótað að stöðva miðlun upp­lýs­inga um eld­flauga­skot...
Container ship sinks in Strait of Hormuz after being hit by projectile, Singapore says
📅 14.10.2026 👁️ 1
Container ship sinks in Strait of Hormuz after being hit by projectile, Singapore says
All 21 sailors on the Singapore-flagged GFS Pride were evacuated safely after it was hit by an projectile on Tuesday, maritime authorities say.
Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara
📅 14.10.2026 👁️ 1
Saksóknari segir Russell Brand vera vægðarlausan nauðgara
Saksóknari í máli breska grínistans Russels Brand segir hann hafa verið vægðarlausan og einbeittan kynferðisbrotamann þegar aðalmeðferð í máli gegn ho...
Hvað er misnotkun á markaðsráðandi stöðu?
📅 14.10.2026 👁️ 2
Hvað er misnotkun á markaðsráðandi stöðu?
Samkeppnisaðilar Ölgerðarinnar segja fyrirtækið markvisst reyna að útiloka vörur sínar á börum, veitingahúsum, útihátíðum og hjá nemendafélögum. Þetta...
Segir Ölgerðina halda Red Bull frá börum – Pantaði Red Bull en fékk drykk frá Ölgerðinni
📅 14.10.2026 👁️ 1
Segir Ölgerðina halda Red Bull frá börum – Pantaði Red Bull en fékk drykk frá Ölgerðinni
Tveir af stærstu næturklúbbum landsins sögðust hafa fengið greiddar milljónir fyrir að eiga ekki viðskipti við umboðsaðila Red Bull. Þetta segir Friðj...
Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 1
Ráðist inn í skóla og veist að nem­endum eða starfs­fólki - Vísir
Kristín Björnsdóttir er formaður Kennarafélags Reykjavíkur. Hún segir mikilvægt að tryggja öryggi bæði nemenda og starfsfólks. „Samfélagið hefur þróas...
How to find Cheap Flights to and from the Canary Islands
📅 14.10.2026 👁️ 2
How to find Cheap Flights to and from the Canary Islands
Whether you live on the islands and want to get back to the UK for Christmas, or you're planning a winter escape to Tenerife or Lanzarote, the price o...
Sigvaldi Einarsson skrifar: Tommustokkurinn, spunagreindin og beislið
📅 14.10.2026 👁️ 2
Sigvaldi Einarsson skrifar: Tommustokkurinn, spunagreindin og beislið
Þegar ég var tólf ára fékk ég vinnu í gamalli og góðri byggingarvöruverzlun, og já, hún var skrifuð með zetu. Í búðinni voru tvö verkfæri sem mótuðu h...
Feðgar í málaferlum – Dánarbú föðurömmunnar dró dilk á eftir sér
📅 14.10.2026 👁️ 2
Feðgar í málaferlum – Dánarbú föðurömmunnar dró dilk á eftir sér
Sonur stefndi föður sínum fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur og krafði hann um 10,6 milljónir króna vegna láns sem hann hafði veitt föðurömmu sinni til faste...
Lögreglan varar foreldra við : Yfir 300 ungmenni með fölsuð rafræn skilríki sem gætu haft alvarlegar afleiðingar
📅 14.10.2026 👁️ 2
Lögreglan varar foreldra við : Yfir 300 ungmenni með fölsuð rafræn skilríki sem gætu haft alvarlegar afleiðingar
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur sent frá sér tilkynningu þar sem foreldrar eru varaðir við VPN-stillingu, sem rúmlega 300 ungmenni nota til að fa...
Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað
📅 14.10.2026 👁️ 2
Afdrifaríkur flutningur á píanói - Reyndu árangurslaust að neita því að vinnuslys hefði átt sér stað
Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt flutningafyrirtæki til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum um 1,6 milljónir króna í vangoldin laun auk dráttarv...
Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni
📅 14.10.2026 👁️ 2
Framkvæmdastjóri Sambíóanna stígur fram með sína reynslu af Ölgerðinni
Alfreð Ásberg, framkvæmdastjóri Sambíóanna, segir að sem viðskiptavinur Ölgerðarinnar í 14 ár þá finnist honum umfjöllun Kveiks um fyrirtækið gefa of ...
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 2
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
Svona var ástandið í fárviðrinu á Siglufirði Vind­hviður fóru upp í 55 metra á sek­úndu. Brak var „á ferð og flugi“ um Siglu­fjörð í dag í fár­viðri, ...
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 1
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði
Svona er ástandið í fárviðrinu á Siglufirði Vind­hviður fóru upp í 55 metra á sek­úndu. Brak var „á ferð og flugi“ um Siglu­fjörð í dag í fár­viðri, þ...
Ó­þolandi leyndarhyggja ríki um niður­stöður PISA-prófa - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Ó­þolandi leyndarhyggja ríki um niður­stöður PISA-prófa - Vísir
Jón Pétur var einn þeirra sem sté í pontu þingsins undir dagskrárliðnum „Störf þingsins“ og sagði að strax árið 2009 hefði Menntamálastofnun áttað sig...
Vill skýr við­brögð við trassa­skap í losunar­málum í lög - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Vill skýr við­brögð við trassa­skap í losunar­málum í lög - Vísir
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, mælti fyrir frumvarpinu á Alþingi í gær. Því er sagt ætlað að styrkja umgjörð loftslag...
Taskmaster Ís­land snýr aftur - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 3
Taskmaster Ís­land snýr aftur - Vísir
Fimm vandlega valdir keppendur hafa nú sett sig í stellingar fyrir upptökur á annarri þáttaröð íslensku útgáfunnar af hinum heimsfrægu skemmtiþáttum T...
Burnham careful before Zelensky meeting but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
📅 14.10.2026 👁️ 2
Burnham careful before Zelensky meeting but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
The UK's prime minister meets with Volodymyr Zelensky after a rocky week for the Ukraine president.
Burnham careful as he meets Zelensky but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
📅 14.10.2026 👁️ 1
Burnham careful as he meets Zelensky but promises Ukraine won't leave 'empty handed'
The UK's prime minister meets with Volodymyr Zelensky after a rocky week for the Ukraine president.
Burnham treads carefully in Zelensky visit, balancing Trump and Ukraine
📅 14.10.2026 👁️ 0
Burnham treads carefully in Zelensky visit, balancing Trump and Ukraine
The UK's prime minister meets with Volodymyr Zelensky after a rocky week for the Ukraine president.
Beachgoers rescue sea turtle in Lanzarote
📅 14.10.2026 👁️ 3
Beachgoers rescue sea turtle in Lanzarote
A group of beachgoers rescued a loggerhead sea turtle at Caleta de Caballo beach in Lanzarote on Sunday after discovering the animal in need of assist...
Fjúkandi þök og talsvert tjón á Siglufirði
📅 14.10.2026 👁️ 3
Fjúkandi þök og talsvert tjón á Siglufirði
Siglufjörður virðist fara hvað verst út úr óveðrinu sem gengur yfir landið. Þar hefur vindur farið upp í 55 metra á sekúndum í hviðum.Samkvæmt tilkynn...
Vonskuveður í Færeyjum
📅 14.10.2026 👁️ 3
Vonskuveður í Færeyjum
Sama lægðakerfi og valdið hefur sögulega djúpri lægð hér á landi í morgun veldur einnig aftakaveðri í Færeyjum.Í Þórshöfn mælast yfir 20 metrar á sekú...
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Vilja hækka akstursgjald eldra fólks um allt að 163 prósent - Vísir
Meirihluti ráðsins samþykkti breytingarnar á fundi 12. október og vísaði þeim til afgreiðslu bæjarráðs og staðfestingar bæjarstjórnar. Örn Arnarson, f...
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
📅 14.10.2026 👁️ 2
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps
Friðarverðlaunahafi Nóbels er með skilaboð til Trumps Banda­ríkin vilja rífa niður Alþjóð­lega saka­mála­dóm­stól­inn. Ísraelar líkja fyrr­ver­andi dó...
Bloggari tilkynnti eigið andlát - „Ef þú ert að horfa á þetta myndband þá er ég, því miður, ekki lengur hér“
📅 14.10.2026 👁️ 2
Bloggari tilkynnti eigið andlát - „Ef þú ert að horfa á þetta myndband þá er ég, því miður, ekki lengur hér“
Breski bloggarinn Charlie Anderson-Read er látin 41 árs að aldri eftir erfiða baráttu við krabbamein. Frá þessu greindi Charlie sjálf í myndbandi til ...
Að­eins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann of­beldi - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Að­eins talið sannað að Andri hafi beitt leigjandann of­beldi - Vísir
Andri og fimm aðrir, þar á meðal barnsmóðir hans, tengdafaðir og bróðir, hlutu fangelsisdóma á mánudag fyrir að frelsissvipta mann, kúga úr honum fé, ...
Ný yfirlýsing frá Réttrúnaðarkirkjunni: Hætta á að söfnuðurinn verði húsnæðislaus
📅 14.10.2026 👁️ 2
Ný yfirlýsing frá Réttrúnaðarkirkjunni: Hætta á að söfnuðurinn verði húsnæðislaus
Réttrúnaðarkirkjan segir raunverulega hættu vera á því að söfnuðurinn standi uppi án staðar til bænahalds þar sem leigusamningur um núverandi húsnæði ...
Einn handtekinn fyrir að selja hundruðum ungmenna fölsuð skilríki
📅 14.10.2026 👁️ 2
Einn handtekinn fyrir að selja hundruðum ungmenna fölsuð skilríki
Einn hefur verið handtekinn vegna rannsóknar lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á sölu á fölsuðum rafrænum skilríkjum. Sá handtekni er grunaður um að h...
Lög­reglan varar for­eldra við „Island Surge VPN“ - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Lög­reglan varar for­eldra við „Island Surge VPN“ - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins en hann er grunaður um að hafa selt hun...
Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni - Vísir
📅 14.10.2026 👁️ 2
Ekki lengur hægt að treysta island.is í blindni - Vísir
Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Einn hefur verið handtekinn vegna málsins en hann er grunaður um að hafa selt hun...
Russell Brand was a 'sexual predator', says prosecution as rape trial begins
📅 14.10.2026 👁️ 2
Russell Brand was a 'sexual predator', says prosecution as rape trial begins
The comedian and actor faces charges including rape and sexual assault from six female complainants who have never met each other, a court is told.
Russell Brand was a 'sexual predator', prosecution alleges as rape trial begins
📅 14.10.2026 👁️ 2
Russell Brand was a 'sexual predator', prosecution alleges as rape trial begins
The comedian and actor faces charges including rape and sexual assault from six female complainants who have never met each other, a court is told.
Hætta á lengri biðlistum ef ekki fæst meira fé á fjárlögum
📅 14.10.2026 👁️ 2
Hætta á lengri biðlistum ef ekki fæst meira fé á fjárlögum
Í fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2027 er reiknað með að heildarútgjöld ríkissjóðs verði 1.765 milljarðar króna. Mikil áhersla er lögð á að skila hallala...