Vegum á sunnanverðu Snæfellsnesi hefur verið lokað að því er fram kemur á vef Vegagerðarinnar, umferðin.is.
Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir fréttamaður og Bragi Valgeirsson tökumaður eru á bakka Klébergslaugar á Kjalarnesi. Þar mældust hviður allt að 36 m/s í morgun.
Ákveðið var að loka sundlauginni en hún var opnuð aftur klukkan ellefu.
Lögreglan á Norðurlandi eystra biðlar til Siglfirðinga að halda sig heima. Þar geysi miklir vindar, þök hafi fokið og tjón orðið á eignum.
Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður ræddi við Baldur Jón Baldursson, snjómokstursmann hjá Nesbræðrum, á Öxnadalsheiði.
Hann hefur verið á heiðinni síðan klukkan átta í morgun og segir veðrið að stigmagnast. Heiðin er á óvissustigi.
Hefur þú rekist á trampólín þar sem það á ekki að vera eða fljúgandi furðuhluti í óveðrinu? Sendu okkur mynd!
Björgunarsveitin Strákar á Siglufirði hefur verið kölluð út í óveðursaðstoð. Útkallið barst nú rétt eftir klukkan ellefu, segir Jón Þór Víglundsson, upplýsingafulltrúi Landsbjargar.
Flugbjörgunarsveitin á Hellu var kölluð út skömmu fyrir klukkan níu í morgun til að aðstoða við gróðurhús í garði við heimahús. Því verkefni er lokið.
Greint var frá því í morgun að björgunarsveitin í Vestmannaeyjum hefði aðstoðað við að festa þakkant.
Ásta Hlín Magnúsdóttir fréttamaður og Hjalti Stefánsson tökumaður eru á Stöðvarfirði. Þar er sæmilegt veður en Austfirðingar hafa einna helst áhyggjur af hækkandi sjávarstöðu þegar líður á daginn.
Kort Vegagerðarinnar á umferðin.is er ansi skrautlegt þennan morguninn. Í viðvörun frá Vegagerðinni segir:
Í dag miðvikudag 14. október er verður appelsínugul viðvörun á Suðurlandi til kl.10:00 vegna storms og vindhviða sem geta farið yfir 40 m/s. Á Snæfellsnesi og Breiðafirði tekur appelsínugul viðvörun gildi kl. 11:00, á Vestfjörðum kl. 17:00 og á Ströndum og Norðurlandi vestra kl. 21:00 vegna hvassviðris og síðar norðanstórhríðar. Búast má við mikilli snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og lokunum vega. Gular viðvaranir eru einnig í gildi víða um land. Vegfarendur eru hvattir til að fresta ferðum ef kostur er, aka með gát og fylgjast með veður- og færðarspám.
Öxnadalsheiði er á óvissustigi en hefur enn ekki verið lokað. Vegagerðin vinnur að snjómokstri. Ólöf Rún Erlendsdóttir fréttamaður og Kristófer Óli Birkisson tökumaður eru á heiðinni og segja að þar skiptist á snjóþekja, hálka og krapi.
Strætó hefur fellt niður ferðir á landsbyggðinni vegna veðurs. Þær leiðir sem hafa ekki ekið í morgun eru leið leið 51 milli Reykjavíkur og Selfoss, leið 50 milli Reykjavíkur og Akraness/Borgarness, og leiðir 58/82 frá Borgarnesi út á Snæfellsnes.
Icelandair vonast til að geta flogið til Akureyrar, Egilsstaða og Hafnar síðdegis en forsvarsfólk er ekki bjartsýnt á að flogið verði til Egilsstaða í dag. Þetta segir Guðni Sigurðsson, upplýsingafulltrúi Icelandair. Ekkert innanlandsflug hefur verið í morgun.
Guðni segir að millilandaflug Icelandair frá Keflavíkurflugvelli hafi gengið vel það sem af er morgni. Einu flugi Icelandair hefur verið aflýst þaðan vegna slæms veðurs í Færeyjum.
Mismunandi viðmið hjá flugfélögum
Nokkrum flugferðum frá Keflavíkurflugvelli var frestað í morgun. Það voru flugferðir á vegum Neos, Atlantic Airways, EasyJet, Finnair og Air Canada.
Guðjón Helgason, upplýsingafulltrúi Isavia, segir að mismunandi flugfélög hafi mismunandi viðmið vegna veðurs. Flugvöllurinn starfi eðlilega og búið sé að opna eina landgönguranann sem var lokað í morgun.
Klébergslaug á Kjalarnesi er lokuð vegna veðurs. Í tilkynningu frá Reykjavíkurborg segir að líkamsrækt sé opin og að það verði látið vita þegar sundlaugin opnar á ný.
Niðurföll eru stífluð víða í höfuðborginni og stórir pollar hafa myndast á götum. Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir tók þessar myndir af starfsmanni Reykjavíkurborgar við Skeiðarvog.
Hviða mældist 57 m/s á Hvammi undir Eyjafjöllum í morgun. Í færslu Einars Sveinbjörnssonar veðurfræðings á Facebook segir að það sé langhæsta hviðumælingin hingað til.
Einar segir að 12 sinnum hafi hviða mælst hærri á Hvammi, en alltaf á tímabilinu desember til mars. Þetta sé því hæsta hviða sem mælst hefur þar í október eða nóvember.
Á Stórhöfða í Vestmannaeyjum mælist hæsti meðalvindurinn, 42 m/s.
Viðmælendur fréttastofu við suðurströndina segja að þar sé veður að ganga niður.
Mjög hvasst var í morgun og þar rigndi mikið. Einn vegfarandi sagði í viðtali við fréttastofu að rigningin hefði bulið af svo miklum krafti á framrúðu bíls hans á leið í vinnu að honum hefði hálfpartinn þótt sem veðrið hefði eitthvað á móti honum persónulega.
Það voru læti í veðrinu upp úr klukkan fimm og sex í morgun en það hefur dottið niður síðasta klukkutímann. Einn viðmælandi sagði að það væri komin blíða hjá sér eftir læti morgunsins.
Vegagerðin er búin að opna þjóðveginn milli Víkur og Markarfljóts, sem var lokaður í morgun.
Flugfélögin Icelandair og Norlandair hafa aflýst samtals fjórum flugferðum í dag og Icelandair er búið að seinka einni til viðbótar.
Flugferðum Icelandair milli Reykjavíkur og Akureyrar, Hornafjarðar, Egilsstaða og Ísafjarðar hefur verið aflýst. Flugi milli Reykjavíkur og Egilsstaða hefur verið frestað.
Norlandair hefur aflýst flugi milli Reykjavíkur og Bíldudals.
„Það var að losna þakkantur af húsi ofarlega í bænum. Minn mannskapur er búinn að fara og festa þennan þakkant niður og er kominn aftur í hús,“ segir Aðalsteinn Baldursson, í svæðisstjórn í Vestmannaeyjum.
Hann segir að menn hafi verið fljótir að bregðast við enda vanir útköllum þegar hvessir í Eyjum. Þeir héldu svo til vinnu að útkallinu loknu en eru viðbúnir því að bregðast við ef frekari þörf verður á aðstoð í dag.
Enn bætist í vind. Mesti vindur sem mælst hefur á láglendi var á Stórhöfða, 42,0 metrar á sekúndu. Þar var enn hvassara í hviðum. Þessu næst koma Surtsey með 30,4 metra á sekúndu og Reykjanessviti með 28,5 metra á sekúndu.
Á hálendi var mesti vindurinn 31,7 metrar á sekúndu á Jökulheimum.
Mikið hefur rignt í Vík í Mýrdal. Þar er úrkoman orðin 38,1 millímetri frá miðnætti.
Við minnum á veðurvef RÚV.
Óveðrið hefur sín áhrif á innanlandsflug.
Fyrsta flugi dagsins milli Reykjavíkur og Akureyrar var aflýst. Flugferðum milli Reykjavíkur og Egilsstaða og Reykjavíkur og Hornafjarðar hefur verið seinkað um eina og eina og hálfa klukkustund.
Flugi milli Reykjavíkur og Ísafjarðar hefur verið seinkað þar til eftir hádegi.
Skólayfirvöld í Vestmannaeyjum hafa ákveðið að fresta skólahaldi til klukkan níu í dag vegna veðurs.
Skólarnir verða opnir svo nemendur komist inn en kennsla hefst ekki fyrr en klukkan níu, eins og staðan er nú. Fólk er þó hvatt til að fylgjast með uppfærðum fréttum á heimasíðu bæjarins.
Mjög hvasst er í Vestmannaeyjum. Vindurinn mældist 37,2 metrar á sekúndu á Stórhöfða klukkan sex.
Björgunarfélag Vestmannaeyja var kallað út skömmu fyrir klukkan átta í morgun. Þá barst beiðni um aðstoð vegna þaks sem var að losna af einbýlishúsi í ofanverðum bænum.
Veðurstofan hefur gefið út gular viðvaranir vegna skriðuhættu á Austfjörðum.
Talsverð úrkoma var í byrjun vikunnar og er jarðvegur í hlíðum því blautur eða vatnsmettaður. Hann er því viðkvæmur fyrir frekari hættu og útlit er fyrir talsverða eða mikla rigningu.
Í dag skapast kjöraðstæður fyrir fljúgandi trampólín og ruslafötur sem færast úr stað.
Veðurstofan hvetur fólk til að koma lausamunum í skjól svo þeir fjúki ekki.
Fyrirsjáanlegt er að óveðrið hamli samgöngum í dag. Þegar er búið að loka þjóðveginum syðst á landinu en auk þess er fjöldi vega á óvissustigi. Viðbúið er að þeir geti lokast með skömmum fyrirvara.
Hálkublettir eru á Öxnadalsheiði, í Mývatnsöræfum, Möðrudalsöræfum, á Biskupshálsi og Vopnafjarðarheiði.
Á Vesturlandi eru Vatnaleið, Svínadalur, Brattabrekka og Holtavörðuheiði á óvissustigi frá klukkan 10.
Flestir vegir á Vestfjörðum verða á óvissustigi í dag. Fyrst eru það Þröskuldar, Steingrímsfjarðarheiði og Ísafjarðardjúp frá klukkan 10. Síðan Klettsháls klukkan 11 og Kleifaheiði, Hálfdán, Miklidalur, Dynjandisheiði og Gemlufjallsheiði frá klukkan 12.
Öxnadalsheiði er á óvissustigi frá klukkan 7 og Siglufjarðarvegur frá klukkan 9.
Farið er að hvessa hressilega syðst á landinu þar sem skil frá mjög djúpri lægð suður af landinu eru farin að ganga inn á landið. Þar er austan stormur eða rok með talsverðri eða mikilli úrkomu.
Í veðurpistli vakthafandi veðurfræðings á Veðurstofu Íslands segir að klukkan sex hafi verið hvassast á Stórhöfða. Þar var vindurinn 37,2 metrar á sekúndu. Næsthvassast var á Vatnsgarðshólum þar sem vindurinn fór í 25,2 metra á sekúndu.
Lægðin gæti endurskrifað Íslandssöguna.
„Lægðin er óvenju djúp og eru nýjustu spár að reikna hana alveg niður í 930 mb þegar hún verður dýpst um hádegisleytið, en þá verður hún skammt suður af Vestmannaeyjum. Lægsti þrýstingur sem mælst hefur í október er 938,4 mb árið 1963.“
„Eins og við höfum verið að spá í gær og í fyrradag þá er útlit fyrir vonskuveður á öllu landinu í dag. Það er mjög djúp lægð núna á hraðri leið til okkar úr suðri og búið að hvessa talsvert sunnanlands í nótt og það á eftir að versna mjög hratt í morgunsárið með talsverðri rigningu,“ segir Hrafn Guðmundsson veðurfræðingur.
„Skilin verða komin inn á landið fyrir hádegi og úrkoma í öllum landshlutum og hvassviðri og stormur, jafnvel rok.“
Lægðamiðjan kemur inn á land síðdegis og þá dregur talsvert úr veðri sunnan og austan til á landinu, segir Hrafn. Þá minnkar veðurhæðin og dregur úr úrkomu.
„Síðan kemur mjög stíf norðanátt sem er vestan megin við lægðarmiðju. Hún kemur inn seinnipartinn með norðan stórhríð á Vestfjörðum og Norðurlandi vestra. Það er margt að gerast í dag.“
Víða viðrar illa til ferðalaga. Fyrst um sinn er hvassast syðst á landinu, svo sem undir Eyjafjöllum, í Mýrdal og Öræfum þar sem verða hættulegar hviður.
Þetta breytist þegar líður á daginn. Þá taka gildi appelsínugular viðvaranir á norðvestanverðu landinu og veður versnar á Norður- og Austurlandi. Það getur gert hríð á fjallvegum vestanlands og fyrir norðan. „Það er varasamt ferðaveður víða á landinu.“
Veðrið verður sérstaklega slæmt norðvestan til þegar hvessir og snjóar talsvert. „Þar getur færðin versnað mjög mikið og hratt.“
Hrafn ráðleggur fólki að huga að lausum munum og taka þá inn.
Á höfuðborgarsvæðinu er útlit fyrir hvassar hviður fram að hádegi en lagast upp úr því.
Búið er að loka hringveginum á stórum kafla syðst á landinu vegna óveðursins sem gengur yfir landið. Vegurinn verður lokaður til klukkan níu.
Mannaðir lokunarpóstar verða á svæðinu.
Sjómenn drifu sig í land í nótt áður en óveðrið skall á suður af landinu. Laust fyrir klukkan þrjú voru öll skip farin af viðvörunarsvæðinu út af Suðurlandi.
Valtýr Bjarnason, stýrimaður á Vestmannaey, ræddi við fréttastofu rétt fyrir klukkan fjögur. Skipið átti að koma inn til löndunar á morgun en þau áform breyttust vegna veðursins.
„Versta veðrið hérna í Eyjum verður þarna klukkan fimm til níu þannig að við ætluðum að vera komnir inn áður en það skylli á,“ segir Valtýr. „Það voru komnir svona fjórtán fimmtán metrar þegar ég var að sigla inn, þannig að það er aðeins byrjað.“
Góðan dag og velkomin á fréttavakt RÚV þar sem við fylgjumst með óveðrinu sem gengur yfir landið í dag og þeim áhrifum sem það kann að hafa á samfélagið.
Gular og appelsínugular viðvaranir hafa verið gefnar út um allt land. Þær fyrstu hafa þegar tekið gildi. Sú alvarlegasta er appelsínugul viðvörun á Suðurlandi vegna austan- og norðaustanstorms. Honum fylgir talsverð rigning á láglendi og ekkert ferðaveður er meðan veðrið er hvað verst. Einnig hafa tekið gildi gular viðvaranir vegna storms og hvassviðris á höfuðborgarsvæðinu, Suðausturlandi og Austfjörðum.
Þegar líður á daginn tekur við hver viðvörunin á fætur annarri. Verst verður veðrið svo við Breiðafjörð, á Vestfjörðum og Ströndum og Norðurlandi vestra þegar líður á daginn, kvöldið og nóttina.
Misjafnt er eftir landshlutum hvenær óveðrið hefst og hvenær það gengur niður. Sums staðar verður það versta afstaðið í dag en annars staðar ekki fyrr en í nótt eða á morgun. Síðasta gula viðvörunin fellur úr gildi á hádegi á morgun, á Austurlandi.