Ágústmánuður var tiltölulega kaldur. Það var úrkomusamt á norðan- og vestanverðu landinu en þurrara á suður- og austurhluta landsins. Norðan- og norðvestlægar áttir voru tíðastar í mánuðinum, en vindur var hægur og veður að mestu gott.
Þetta kemur fram í samantekt Veðurstofunnar yfir tíðarfar í ágúst.
56 auka sólskinsstundir á Akureyri
Í Reykjavík var meðalhiti 10,6 stig, sem er 0,6 stigum undir meðaltali síðustu tíu ára. Meðalhiti á Akureyri var 9,8 stig, 1,1 stigi undir meðallagi.
Á landsvísu var meðalhiti 9,5 stig, 0,6 stigum undir meðallagi.
Ágúst var engu að síður sólríkur. Sólskinsstundir í Reykjavík voru um 197, rúmlega 32 stundum yfir meðallagi. Á Akureyri voru þær um 194, nærri 56 stundum yfir meðallagi.
Úrkoma víða yfir meðallagi
Á Akureyri og í Reykjavík var úrkoma þriðjungi meiri en í meðalári. Í Stykkishólmi var mánaðarúrkoman 60% yfir meðaltali.
Þrátt fyrir að meira hafi rignt en venjulega voru rigningardagarnir jafn margir eða færri en alla jafna. Átta daga af 31 mældist úrkoma einn millimetri eða meiri á þessum þremur stöðum. Það eru jafnmargir dagar og í meðalári á Akureyri, tveimur dögum færri en meðaltalið í Stykkishólmi og þremur færri í Reykjavík.