Jean-Luc Crucke, samgönguráðherra Belgíu, staðfesti í morgun að tvö börn á táningsaldri, ökumaður rútunnar og umsjónarmaður barnanna hefðu látist í slysinu, að því er belgíski fjölmiðillinn HLN segir.
Skólarútunni var ekið yfir lestarteina þrátt fyrir að viðvörunarljós loguðu og að vegslá væri niðri, að sögn Geerts Hermans, borgarstjóra í Buggenhout norðvestur af Brussel þar sem slysið varð um klukkan 8:15 að staðartíma í morgun.
Hundrað farþegar voru um borð í lestinni en engar fréttir eru um að þeim hafi orðið líkamlega meint af árekstrinum.
Fréttin verður uppfærð.