Daði Már Kristófersson fjármálaráðherra segir að gert sé ráð fyrir nokkurra milljarða króna afgangi á rekstri ríkisins í fjárlagafrumvarpi næsta árs, sem verður lagt fram eftir helgi.
„Ég mun auðvitað kynna þetta á mánudaginn og þá verða allar þessar tölur ljósar en þetta hleypur á einhverjum milljörðum,“ segir Daði. Hann ræddi efnahagsmálin í Vikulokunum. Þar talaði hann meðal annars um húsnæðismarkaðinn, verðtryggingu, fjárlögin og hagræðingaraðgerðir.
Hallalaus fjárlög mikilvægasta aðgerðin til að ná niður verðbólgu og vöxtum
Daði Már segir viðræður vegna forsendubrests kjarasamninga hafa verið uppbyggilegar.
Í kjarasamningum frá 2024 er ákvæði sem heimilar verkalýðshreyfingunni að segja þeim upp ef verðbólga mælist yfir 4,7% í ágúst á þessu ári. Hún mældist 5,6% og eru samningarnir því í uppnámi.
Kallað hefur verið eftir aðkomu ríkisins að samningunum.
Daði Már segir það afar furðulegt fyrirkomulag að ríkið niðurgreiði kjarasamninga á almennum markaði.
„Okkar afstaða er alveg skýr. Við höfum verið mjög tilbúin að ræða ýmsar lausnir en við erum ekki að fara að gera það á kostnað hallalausra fjárlaga. Þau eru langsamlega mikilvægasta aðgerðin sem ríkið getur ráðist í til að draga úr þenslu, til að stuðla að því að við náum niður verðbólgu og vöxtum og það gefum við ekki eftir – það eru miklu stærri hagsmunir þar undir.“
Ákveðnar afmarkaðar aðgerðir séu til skoðunar. Daði Már gaf þó ekkert upp um hverjar þær kynnu að vera og vísaði til félagsmálaráðherra.
Hann segir markmið kjarasamninganna 2024 vissulega hafa verið að ná verðbólgunni niður. Niðurstaða nákvæmrar greiningar gefi þó til kynna að kaupmáttur hafi aukist síðan samningarnir voru undirritaðir.
Þrátt fyrir mikla verðbólgu telur Daði Már ástæðu til að vera bjartsýnn á að sátt náist í viðræðum um samningana.
„En það er þrátt fyrir allt þannig að staðan hefur ekki versnað hvað varðar ráðstöfunartekjur þeirra sem eru á vinnumarkaði. Það skapar ákveðin tækifæri. Þess vegna hefur mér fundist samtalið vera ákaflega uppbyggilegt og já, ég er frekar bjartsýnn. En þetta er auðvitað viðkvæm staða og ég skil mjög vel að fólk sé langþreytt á verðbólgunni,“ segir Daði Már.