Bandarískir vísindamenn á vegum Geimferðastofnunar Bandaríkjanna, NASA, koma til Íslands í ágúst til að rannsaka áhrif almyrkvans á andrúmsloftið með loftbelgjum. Rannsóknin á meðal annars að nýtast við að bæta veður- og loftslagslíkön.
Teymið kemur frá Idaho- og Kentucky-háskóla og er verkefnið fjármagnað af NASA, Geimferðastofnun Bandaríkjanna. Sambærilegar rannsóknir voru gerðar í Bandaríkjunum árin 2023 og 2024, þegar þar urðu hringmyrkvi og almyrkvi.
Sævar Helgi Bragason, Stjörnu-Sævar, segir að markmiðið sé að afla gagna sem geti nýst til að bæta veður- og loftslagslíkön. Hann segir sólmyrkva geta haft töluverð áhrif á andrúmsloftið, meðal annars vegna skyndilegrar kólnunar.
Lesa má meira um málið á bls.14 í Morgunblaðinu í dag