Appelsínugul veðurviðvörun tók gildi núna klukkan fimm á Suðurlandi og stendur hún yfir til klukkan tíu. Engin skipaumferð er nú innan viðvörunarsvæðisins en laust fyrir klukkan þrjú í nótt mátti sjá á skipaumferðasínunni Marinetraffic að síðustu Vestmannaeyjaskipin voru á leið til hafnar, en það voru skipin Bergey, Vestmannaey og Huginn.
Valtýr Bjarnason stýrimaður var nýbúinn að stýra ísfisktogaranum Vestmannaey að landi þegar fréttastofa náði sambandi við brúnna rétt fyrir klukkan fjögur. Skipið sigldi frá Neskaupstað á föstudaginn og að öllu óbreyttu hefði það átt að koma til löndunar á fimmtudag en nauðsynlegt reyndist að hraða för til að komast í var fyrir veðrinu.
„Versta veðrið hérna í Eyjum verður þarna klukkan fimm til níu þannig að við ætluðum að vera komnir inn áður en að það skylli á,“ segir Valtýr. „Það voru komnir svona fjórtán fimmtán metrar þegar ég var að sigla inn, þannig að það er aðeins byrjað.“
Vestmannaey var á þorskveiðum og landaði um sextíu og þremur tonnum eftir túrinn. Valtýr segir að staðan verði tekin seinna í dag og metið hvenær hægt verði að halda aftur út á miðin.
Vegfarendum ráðlagt að fresta ferðum
Í tilkynningu frá Vegagerðinni er bent á að vindhviður geti farið upp í 40 metra á sekúndu. Klukkan ellefu tekur appelsínugul viðvörun gildi á Snæfellsnesi og á Breiðafirði, þar næst á Vestfjörðum klukkan fimm síðdegis og á Ströndum og norðurlandi vestra klukkan níu annað kvöld. Gert er ráð fyrir hvassviðri og norðanstórhríð.
Þá má búast við mikilli snjókomu eða slyddu, slæmu skyggni og lokunum vega. Gular viðvaranir verða einnig í gildi víða um land. Vegfarendum er ráðlagt að fresta ferðum og fylgjast vel með veður- og færðaspám.