Alls voru 1.024 einstaklingar handteknir, þar af 334 sem eru grunaðir um mansal. Þá voru kennsl borin á 2.070 mögulega þolendur.
Aðgerðirnar, sem bera yfirskriftina Operation GLOBAL CHAIN, fóru fram dagana 8. - 12. júní, í samvinnu við Europol, Frontex og Interpol. Markmiðið var að uppljóstra um og uppræta glæpastarfsemi tengda mansali, bera kennsl á fórnarlömb og stofna til rannsókna á skipulögðum glæpahópum.
Alls hafa 465 nýjar rannsóknir verið hafnar í tengslum við aðgerðirnar.
Flest fórnarlamba glæpastarfseminnar eru fullorðnar konur en 64,2 prósent þeirra voru seldar mansali í vændi. Hlutfallið er enn hærra meðal ólögráða einstaklinga, eða 86,4 prósent.
Aðrir voru seldir mansali til að taka þátt í annars konar glæpastarfsemi, til að betla eða stela. Flest fórnarlambanna koma frá Suður-Ameríku.
Á Íslandi viðhafði lögregla eftirlit við tvo staði þar sem grunur lék á um að vændi væri stundað. Staðirnir eru sagðir tengjast skipulagðri glæpastarfsemi kínverskra aðila.
Eins og fyrr segir náðust myndskeið af 50 vændiskaupendum og þá voru fimm handteknir. Lagt var hald á um 14.000 evrur í reiðufé, þrettán farsíma og ellefu skilríki.
Í tilkynningu Europol segir að unnið sé að yfirheyrslu vitna.
Borin voru kennsl á sextán mögulega þolendur vændis og þeim boðin aðstoð. Tveir voru handteknir vegna ólöglegrar dvalar á Íslandi.