Mikael Torfason er fæddur 1974 og hefur gefið út fjölda bóka og leikrita og starfað sem blaðamaður um árabil en í dag á kvikmyndaiðnaðurinn hug hans.
Stefanía er fædd árið 1986 og hefur meðal annars leikið aðalhlutverkið í kvikmyndinni Dimmalimm sem Mikael leikstýrði, Natatorium og Hvítur, hvítur dagur. Þau fluttu til Bandaríkjanna í byrjun árs 2024 og sagði Mikael í samtali við Vísi að hann ætli aldrei að flytja heim.
Hjónin endurnýjuðu heitin með stæl í sólinni og klæddist Stefanía hvítum kjól en Mikael svörtum jakkafötum.
„Endurnýjuðum heitin eftir 15 ár af hamingju,“ skrifaði Stefanía meðal annars á Instagram síðu sína þar sem þau voru umkringd nánustu fjölskyldu. Hún vitnaði sömuleiðis í skáldsagnapersónuna Catherine úr ægilegu ástarsögunni Wuthering Heights eftir Emily Brontë og skrifaði: „Whatever our souls are made of, his and mine are the same,“ eða „Sama hvað sálir okkar eru búnar til úr þá er hans sál eins og mín.“