Gloss og varaolía eru vörur sem eru til í flestum snyrtibuddum. Þetta er snyrtivaran sem setur punktinn yfir i-ið, fullkomnar förðunina og frískar þig við yfir daginn. Úrvalið í verslunum er gríðarlega breitt og misjafnt eftir hverju fólk er að leita.
Sumar vilja að glossið ýki varirnar, aðrar vilja aðeins fá smá lit á meðan aðrar þola ekki klístraðar formúlur.
Hér fyrir neðan eru nýjar, spennandi og fjölbreyttar formúlur.
Lip Lift Max frá Pixi
Gloss frá Pixi sem er í raun varameðferð og eykur fyllingu með kælandi tilfinningu og glansandi áferð. Gefur vörunum fallega áferð og fyllingu á sama tíma. Varirnar verða ekki þurrar við notkun heldur gefur formúlan vörunum djúpan raka. Formúlan veitir langvarandi fyllingaráhrif og hefur ferskt mentólbragð.
Þetta er sérstök formúla frá Clarins sem gefur vörunum fyllra útlit, mikinn glans og mjúka áferð. Varan hefur verið vinsæl í yfir áratug en þetta er ný útgáfa og sækir innblástur í kælimeðferð (e. cryotherapy) og veitir ferska og kælandi tilfinningu við notkun. Formúlan inniheldur mentól og ilmkjarnaolíu úr myntu. Hún skilur eftir glansandi, örlítið bláleita áferð sem undirstrikar náttúrulega fegurð varanna og bætir útlit þeirra dag frá degi.
Fæst til dæmis hjá Beautybox og kostar 4.990 kr.
RMS Beauty Legendary varaolía
Varaolía sem er einstaklega nærandi og hönnuð til að gefa fallegan lit og gljáa sem klístrast ekki. Formúlan er létt og þægileg og ýkir varirnar með djúpum gljáa. Þetta er eins og að vera með varasalva með byggjanlegum lit og gljáandi áferð. Þær sem þola ekki klístursgloss munu elska þessa formúlu sem kemur í fjölmörgum æðislegum litum.
Fæst í Eliru og kostar 5.590 kr.
Lip Candy-olía frá Nabla
Næringarrík varaolía sem gefur vörunum svokallaða glassúrsáferð eða mjög glansandi áferð, án þess að vera klístruð. Innihaldsefnin eru næringarrík sem auka raka varanna frá fyrstu notkun. Formúlan endist lengi á vörunum.
Formúlan er gegnsæ en nokkrar bragðtegundir eru í boði, eins og vínber, Litchi-ber, hunang, vatnsmelóna, saltkókoshneta og kirsuber.
Fæst í Nolu og kostar 5.590 kr.
Gosh Soft'n Tinted Lip Balm
Varaglossið frá Gosh frískar upp á þig og mýkir varirnar. Það gefur fallegan lit og veitir vörunum mikinn raka á sama tíma. Það kemur í sex litum og er upplagt í dagsins önn.
Fæst á Beautybar.is og kostar 1890 kr.




