Lögreglunni á Suðurlandi tókst að hafa hendur í hári erlendra ferðamanna í gærkvöldi sem staðnir voru að miklum utanvegaakstri um helgina. Þeir fengu sekt upp á fleiri hundruð þúsund og hefur sektin verið gerð upp, samkvæmt Þorsteini M. Kristinssyni, aðalvarðstjóra hjá Lögreglunni á Suðurlandi.
Ferðamennirnir óku um á tveimur Land Rover-jeppum og sást til utanvegaaksturs þeirra víða á hálendinu um helgina. Þeir eru sagði hafa spænt upp landslag á lokuðu svæði við Kötlujökul, Einhyrning og í Hvanngili.
Upphæð sekta fyrir utanvegaakstur er matsatriði og fer eftir umfangi hverju sinni. „Lægstu sektirnar eru fyrir lítilsháttar gáleysisutanvegaakstur. Stórfelldur, ljótur utanvegaakstur getur verið metinn á hundruð þúsunda. Það skiptir máli hvort þetta sé á viðkvæmu svæði, náttúruverndarsvæði og hvort það séu gróðurskemmdir. Þetta er matsatriði og það er horft til þessa þegar sekt er ákvörðuð,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn segir það vökulum augum landvarða og ferðaþjónustunnar að lögreglunni tókst að hafa uppi á ferðamönnunum. Þeir hlýddu fyrirmælum lögreglu og komu á lögreglustöð þar sem sektin var gerð upp. „Málinu er lokið svo framarlega sem þeir haga sér og keyra á vegum en ekki annars staðar,“ segir Þorsteinn.