Tvær af þremur þyrlum Landhelgisgæslunnar auk flugvélar gæslunnar eru bilaðar. Þar af leiðandi er aðeins ein þyrla til taks í útköll.
Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar segir þá stöðu koma upp á ári hverju að hluti flotans sé ónothæfur í nokkra daga vegna viðhalds.
Auðvitað viljum við vera með tvær þyrlur stærstan hluta ársins en staðan er einfaldlega sú að með þremur þyrlum þá er þetta raunveruleikinn. Þá eru alltaf ákveðið margir dagar á ári þar sem við erum bara með eina.
Þurfa að forgangsraða eftir alvarleika
Hann segir óljóst hve langan tíma viðhaldsvinna á þyrlunum og flugvélinni eigi eftir að taka. Það geti verið umfangsmikið verk.
„Það hefur oft verið notuð sú þumalputtaregla að á móti einum flugtíma séu sjö til átta viðhaldstímar og það er bara mjög erfitt oft að segja til um það þegar það koma upp smávægilegar bilanir hversu langan tíma það tekur að koma vélinni aftur í gagnið.“
En hvað gerið þið ef það koma upp fleiri útköll á sama tíma í sitthvorum landshlutanum?
Þá verðum við einfaldlega að forgangsraða og við slíkar aðstæður þá yrði einfaldlega forgangsraðað eftir alvarleika.