Hjörtur Magni Jóhannsson, sóknarprestur í Fríkirkjunni, gaf fimm pör saman í gær. Hann rekur fjöldann til dagsetningarinnar í gær - 20.06.2026.
„Það virðist vera og líka 06.06.2026 þá var fjöldi athafna bæði skírnir og brúðkaup. Fólk virðist vera að festa sig svolítið í þessum tölum, þessum tímasetningum og það er bara ánægjulegt og gaman, en svolítið sérstakt.“
Bóka jafnvel þrjú ár fram í tímann
Hann segir suma jafnvel hafa bókað dagsetningar tvö til þrjú ár fram í tímann. Söfnuðurinn hafi stækkað mikið á undanförnum árum og því jafnvel dæmi um að fólk komist ekki að á eftirsóttum dagsetningum.
„Á tveimur, þremur árum getur nátturlega ýmislegt gerst og fólk fer í sundur eða saman. En já nokkrar þeirra eru bókanir mörg ár fram í tímann og það er bara virkilega gleðilegt og ánægjulegt.“
Hann gerir ráð fyrir því að fleiri slíkar dagsetningar séu eftir í ár. Þess má geta að dagsetningin 26.06.2026 er á föstudag.
Hjónavígslurnar í gær voru ekki allar í Fríkirkjunni og þurfti Hjörtur því að vera á þeytingi í allan gærdag. Hann segir góða veðrið ekki hafa spillt fyrir á stóra deginum hjá fólki.
„Það var himnablíða, einstakt og fagurt.“