Ökumaður mótorhjóls lést í gær eftir árekstur nálægt Vík í Mýrdal. Greint var frá því í gær að mótorhjól og bíll hefðu skollið saman á hringveginum austan Víkur. Ökutækin komu úr gagnstæðum áttum.
Ökumaður mótorhjólsins var úrskurðaður látinn á vettvangi. Lögreglan á Suðurlandi greinir frá þessu í tilkynningu.
„Ásamt lögreglu og tæknideild, sinntu sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Slökkvilið Mýrdalshrepps og þyrla Landhelgisgæslu útkallinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang,“ segir þar.
Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn slyssins.