Merki eru um að Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands og leiðtogi Verkamannaflokksins, tilkynni afsögn sína bráðlega, jafnvel strax á morgun. Breskir fjölmiðlar hafa eftir viðskiptaráðherra landsins að Starmer hugsi sinn gang um helgina.
Þrýstingur á Starmer um að segja af sér hefur aukist síðustu daga eftir að fráfarandi borgarstjóri Manchester, Andy Burnham, tryggði sér þingsæti í aukakosningum á fimmtudag. Búist er við að hann skori Starmer á hólm í leiðtogasætið.
Starmer hefur margoft sagt, síðast á föstudag, að hann ætli ekki að hörfa verði skorað á hann. Það sama hafa bandamenn hans sagt. Tónninn virðist annar núna. Peter Kyle, viðskiptaráðherra í ríkisstjórn Starmers, sagði í viðtali við breska ríkisútvarpið í morgun að Starmer hefði gefið sér tíma um helgina til að íhuga þann pólitíska veruleika sem við honum blasi og sömuleiðis áskoranir. Starmer ætli að gera það sem sé landinu fyrir bestu.
Nokkrir breskir fjölmiðlar greina frá því að mögulega tilkynni Starmer afsögn sína á morgun. Hvort hún taki gildi strax eða hvort hann gefi út tímaáætlun um starfslok sín verði að koma í ljós.
Forsætisráðuneyti Bretlands hefur ekki svarað breskum fjölmiðlum á annan hátt en að benda á yfirlýsingar Starmers á föstudag um að hann ætli hvergi að hvika fái hann mótframboð í leiðtogasætið. Fari Starmer úr embætti á árinu fá Bretar sjöunda forsætisráðherrann á tíu ára tímabili.