Lögregla var með aðgerðir í Skipholti 9 í dag. Skúli Jónsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu segir karl og konu á fertugsaldri hafa verið handtekin í aðgerðunum. Þau hafa verið vistuð í fangageymslu.
Samkvæmt frétt Vísis voru maður og kona leidd út í handjárnum. Rauðir blettir voru á peysu konunnar og ýmsum munum sem lágu á víð og dreif við innganginn.
Skúli segir fólkið hafa brotið rúðu í hurð hússins til að komast inn. Það kunni að skýra blóðslettur á fötum konunnar og á vettvangi. Lögregla hafi verið í næsta húsi þegar tilkynning um innbrotið barst klukkan 12:08 og viðbragð hafi því verið skjótt.
Helena Rós Sturludóttir upplýsingafulltrúi Ríkislögreglustjóra staðfestir að sérsveit Ríkislögreglustjóra hafa veitt lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu liðsinni í aðgerðunum.
Hann segir bæði konuna og manninn vera Íslendinga. Þau eigi langan brotaferil að baki og séu í óreglu.
Fréttin verður uppfærð eftir því sem upplýsingar berast.