Lögreglan greinir frá þessu í tilkynningu. Ökumaður bifhjólsins var úrskurðaður látinn á vettvangi.
Alvarlegt umferðarslys varð um fjögurleytið síðdegis í gær austan Víkur í Mýrdal, nálægt Höfðabrekku, þegar bifhjól og ökutæki sem kom úr gagnstæðri átt rákust saman.
Ásamt lögreglu og tæknideild, sinntu sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Slökkvilið Mýrdalshrepps og þyrla Landhelgisgæslu útkallinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang.