Alvarlegt umferðarslys varð austan við Vík í Mýrdal um kl. 16 á laugardag. Var um að ræða árekstur bifhjóls og bíls. Ökumaður bifhjólsins var úrskurðaður látinn á vettvangi. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Lögreglunnii á Suðurlandi og þar segir einnig: „Ásamt lögreglu og tæknideild, sinntu sjúkraflutningar Heilbrigðisstofnunar Suðurlands, Slökkvilið Mýrdalshrepps og þyrla Landhelgisgæslu útkallinu. Rannsóknarnefnd samgönguslysa kom einnig á vettvang.Lögreglan á Suðurlandi fer með rannsókn slyssins.“
Banaslys austan við Vík í Mýrdal