Matvælastofnun sektaði tvo kattareigendur í apríl fyrir slæma umhirðu dýranna.
Annar fór í vikufrí án þess að sjá til þess að læða og kettlingar hennar fengju pössun eða eftirlit. Meðan á þessu stóð fengu kettirnir ekki mat og vatn sem skildi. Eigandinn var sviptur köttunum og sektaður um 144 þúsund krónur.
Annar kattaeigandi geymdi ketti sína í búri utandyra þar sem var hvorki fóður né vatn. Kettirnir voru teknir af eigandanum og hann sektaður um 162 þúsund krónur.
Köttur var tekinn af þriðja kattareigandanum vegna óviðunandi heimilisaðstæðna og hundar voru teknir af hundaeiganda af sömu ástæðu.
Þetta er meðal stjórnvaldsákvarðana sem Matvælastofnun tók í dýravelferðarmálum frá því í febrúar fram í maí.
Nautgripabóndi var kærður til lögreglu eftir að Matvælastofnun fékk ábendingu um að hann hefði barið kýr og kvígur.
Sauðfjárbóndi sem skar tvær kindur sínar á háls var sektaður um 286 þúsund krónur. Það er vegna þess að hann sinnti ekki skyldum um að svipta þær meðvitund fyrst.
Hestar voru teknir af umráðamanni stórrar hrossahjarðar sem vanrækti fóðrun og brynningu og hugaði ekki að sjúkum og horuðum hrossum.
Matvælastofnun réð verktaka til þess að sinna hófhirðu hrossa og fjarlægja slysahættur úr umhverfi þeirra. Umsjónarmaður hrossanna vanrækti þetta og fékk sendan reikninginn fyrir úrbótum.