Tveggja bíla árekstur varð á Þórsmerkurvegi, skammt frá Hamragörðum og Seljalandsfossi. Þetta staðfestir Þorsteinn M. Kristinson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi.
Áreksturinn var minniháttar og engin slys urðu á fólki.
Vegurinn er opinn en lögregla stýrir umferð. Búast má við umferðartöfum.