Gjörólíkir frambjóðendur keppast um forsetaembættið í Kólumbíu í seinni umferð kosninga í dag. Annar vill semja við glæpahópa um að leggja niður vopn. Hinn vill taka hart á þeim og byggja tíu öryggisfangelsi.
Talið er að mjótt verði á munum milli þeirra Ivan Cepeda og Abelardo de la Espriella. Sá síðarnefndi er þó með aðeins meira fylgi, samkvæmt könnunum. Glæpatíðni í landinu hefur aukist og öryggisgæslan á kjördag er mikil.
De la Espriella er nýliði í stjórnmálum og á hægri á ás stjórnmálanna. Hann kallar sig tígurinn og vill hætta viðræðum við vopnaða hópa og senda herinn gegn þeim. Þá heitir hann því að byggja tíu öryggisfangelsi í frumskóginum. Í öryggisskyni er hann á bak við skothelt gler á kosningafundum.
Hinn frambjóðandinn er Ivan Cepeda, þingmaður á vinstri ásnum. Hann ætlar að halda áfram á sömu braut og fráfarandi forseti og ganga til viðræðna við vopnaða hópa í von um að koma í veg fyrir mannfall.
„Á þessari úrslitastundu er afgerandi klofningur meðal kjósenda, það ríkir mikil sundrung,
sem kom greinilega í ljós í fyrstu umferð kosninganna,“ segir Glaeldys Gonzalez, sérfræðingur hjá International Crisis Group. „Í reynd takast tvær fylkingar á um hvor fái völdin og stjórnartaumana næstu fjögur ár.“
Glæpaaldan hefur haft áhrif á daglegt líf almennings og mannrán, bílsprengjur og morð eru tíð.