Kona á tíræðisaldri slasaðist illa þegar hún féll úr hjólastól sínum á illa farinni gangstétt í Langarima í Grafarvogi. Ættingjar hennar þakka fyrir að ekki fór verr og segja gangstéttina slysagildru sem lengi hafi verið varað við, en án árangurs.
Soffía Jóhannesdóttir er 93 ára og býr á hjúkrunarheimilinu Eir í Grafarvogi. Hún notast við hjólastól. Soffía var á leið í klippingu með dóttur sinni, Sigurlaugu Björk Guðmundsdóttur sem ók hjólastólnum, þegar hún féll fram fyrir sig á djúpri sprungu í gangstétt við Langarima. Hún datt úr hjólastól sínum og lenti beint á andlitinu. Hún er illa marin á öllu líkamanum eftir fallið.
Hlúðu að Soffíu alblóðugri á gangstéttinni
Fólk sem átti leið hjá hlúði að Soffíu, en hún og Sigurlaug voru í miklu áfalli eftir fallið.
„Hún sat bara hérna á gangstéttinni alblóðug og þau hringdu á sjúkrabíl og hjálpuðu mér að stumra yfir henni. Það kom fólk hérna úr næstu húsum, lítill strákur með klaka í poka til að setja á,“ segir Sigurlaug.
Gangstéttin er illa sprungin á löngum kafla og hefur verið í mörg ár. Soffía segir að margir hafi slasað sig á henni og íbúar í hverfinu hafi sent ítrekaðar athugasemdir á Reykjavíkurborg og óskað eftir að hún verði lagfærð.
„Kona sem býr hérna segist hafa sent sex eða sjö erindi á borgina, bara hún, og þau sögðust alltaf að þau myndu kannski líta á þetta þegar þeir hefðu tíma en það hefur ekkert gerst,“ segir Sigurlaug.
Vilja að Reykjavíkurborg bæti úr
Sigurlaug og systkini hennar segjast þakklát fyrir að ekki fór verr og vona að slysið verði til þess að borgin bæti úr, hlusti á íbúa og lagfæri illa farnar gangstéttir sem eru víða og skapa hættu.
„Ef þeir fá athugasemdir þá hlýtur að vera ástæða til að skoða málið og gera eitthvað. Ekki bara hér, heldur alls staðar þar sem gangstéttirnar eru svona, þá er þetta slysagildra.“